Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Andri Broddason skrifar 21. september 2026 18:02 Sandy Scott gat lyft bikarnum sem hann vann um helgina þrátt fyrir að bundið væri um úlnlið hans. Dylan Buell/Getty Images Skotinn Sandy Scott tryggði sig um helgina á PGA-mótaröðina eftir að hafa unnið Nationwide Children’s Hospital Championship-mótið á Korn Ferry-mótaröðinni. Hann er þakklátur fyrir það að ná þessum árangri þar sem fyrr á ferlinum var hann ekki viss um að hann gæti spilað mikið golf.
Árið 2019 sleit Scott liðbönd í úlnliðnum sínum og endaði á því að þurfa að fara í tvær aðgerðir vegna þess. Eftir aðgerðir gat hann ekki tekið upp kylfu í sautján mánuði og í viðtali við Golf Channel sagðist hann hafa glímt við andlega erfiðleika. „Ég átti erfitt tímabil og ég var ekki viss hvort að ég gæti spilað golf aftur. Meiðslin urðu verri og verri og það var erfiðara að hita upp. Sársaukinn var alltaf að verða meiri,“ sagði Scott um tímann sem hann ákvað að hann þyrfti að taka sér pásu. Það var erfitt fyrir hann að koma til baka eftir meiðslin en hann byrjaði á að keppa á mótaröðum í Suður-Ameríku og Evrópu. Í fyrra var hann búinn að vinna sér inn nógu mörg stig til þess að taka þátt í Korn Ferry-mótaröðinni sem er mótaröðin fyrir neðan PGA-mótaröðina. Þegar hann komst á Korn Ferry-mótaröðina spilaði hann vel og með sigri á Nationwide Children‘s Hospital Championship-mótinu var hann kominn með nógu mörg stig til þess að tryggja sig yfir á PGA-mótaröðina. That winning feeling 😃 pic.twitter.com/53ovD53cfg— Korn Ferry Tour (@KornFerryTour) September 20, 2026 Áður en Scott spilar golf þá þarf hann að binda utan um úlnliðinn á sér. Hluti af ástæðunni er vegna sársauka en hann gerir það líka til að minna sig á að njóta þess á meðan hann upplifir drauminn sinn. „Eftir að ég kláraði háskóla sá ég allt í öðru ljósi og er bara ánægður með að ég fái að keppa og uppfylla drauminn minn að spila golf að atvinnu. Að spila vel er bara bónus.“
Golf Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira