Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Agnar Már Másson skrifar 22. september 2026 17:36 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Tuttugu og fimm ára karlmaður hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi eftir að hafa verið gómaður með um hundrað ljósmyndir og myndbönd af barnaníðsefni í síma sínum. Maðurinn játaði sök en ekki náðist að birta honum dóminn. Hann býr í dag í Danmörku.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í júlí en var fyrst birtur síðdegis í dag. Lögreglan ákærði manninn fyrir kynferðisbrot með því að hafa í október 2024 á þáverandi heimili sínu haft í vörslum sínum „alls 91 ljósmynd og 10 myndbönd sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt,“ segir í dómnum. Hann hafi geymt myndefnið í iPhone-farsíma sem hefur nú verið gerður upptækur. Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og honum til málsbóta leit dómari til þess að hann hefði ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað. Til þyngingar var litið til þess að myndefnið væri „að hluta til mjög gróft“. Tókst ekki að birta honum dóminn Maðurinn hlaut því sextíu daga fangelsisdóm, sem er þó skilorðsbundinn til tveggja ára, auk þess sem iPhone-farsími hans var gerður upptækur. Aftur á móti mætti maðurinn ekki í dómssal við dómsuppkvaðningu og var því lögreglu falið að birta honum dóminn en maðurinn er samkvæmt þjóðskrá búsettur í Danmörku. „Ekki náðist í dómfellda [manninn] þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að birta honum dóminn,“ segir í dómsbirtingu í Lögbirtingablaðinu og því voru dómsorðin birt þar.
Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira