Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar 23. september 2026 08:47 Gjaldskrár Húnaþings vestra hækka um 0% árið 2027 og álagningarprósenta fasteignaskatts lækkar svo fasteignagjöld standi líka í stað Við í Húnaþingi vestra stöndum vörð um okkar íbúa og hækkum hvorki gjaldskrár né fasteignagjöld á næsta ári. Leikskólagjöld standa í stað. Hitaveitan. Tónlistarskólinn. Allt. Meirihluti B-lista Framsóknar og annarra framfarasinna og D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Húnaþingi vestra hefur ákveðið að allar gjaldskrár sveitarfélagsins standi í stað milli áranna 2026 og 2027. Þar erum við að stíga afgerandi skref til að styðja íbúa sveitarfélagsins í því ólíðandi og stjórnlausa umhverfi gengdarlausra hækkana sem ríkisstjórnin hefur búið til með úrræðaleysi sínu. Þetta var áherslumál okkar í Framsókn fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar, og afar ánægjulegt að það sé orðið að veruleika. Það þýðir ekki að þetta sé auðvelt, né heldur að þetta sé viðbragð til framtíðar. Þó Húnaþing vestra hafi verið vel rekið um langt skeið getum við ekki endalaust haldið okkar gjaldheimtu í skefjum meðan allir í kringum okkur hækka reikningana sem þeir senda okkur. Við, sem stýrum fámennu sveitarfélagi norður í landi, getum tekið ágjöfina á okkur um nokkra stund, en ekki til langframa. Það þarf að snúa skipinu. Í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 hækka krónutölugjöld ríkisins um 5,2%, í kjölfar hækkunar um 3,7% í fyrra, og kílómetragjaldið hækkar um 15,9%. Þá eru ótalnar ýmsar gjalda- og skattahækkanir sem bitna sérstaklega á landsbyggðinni. Verðbólgan er enn rúmlega tvöfalt hærri en markmið Seðlabankans. Hvernig skilaboð eru það eiginlega inn á vinnumarkaðinn ef ríkið hækkar sín krónutölugjöld um tvöfalt verðbólgumarkmiðið? Aðilar á markaði munu einfaldlega líta á það sem leiðbeinandi tölu, og höfrungahlaupið heldur áfram. Í slíku umhverfi er ógerningur að vextir lækki. Stöðugleikasamningarnir sem voru undirritaðir í mars 2024 byggðu á því að ríkið, sveitarfélögin og atvinnulífið myndu róa í sömu átt. Ríkið lætur sitt svo sannarlega eftir liggja. Byggðarráð Húnaþings vestra svaraði á fundi sínum þann 21. september fyrirspurnum frá VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Fagfélögunum um gjaldskrármál sveitarfélagsins, auk erindis Starfsgreinasambandsins um þjóðarsátt um verðstöðugleika. Svarið var stutt. Gjaldskrárnar standa í stað. Við ætlum að gera betur en þau 2,5% sem skorað var á okkur að halda okkur innan, og í sömu svörum gagnrýndum við boðaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Fyrir íbúa Húnaþings vestra þýðir þetta að leikskólinn, sorphirðan og sundkortið kosta það sama í janúar og þau gera í dag. Fasteignagjöldin þurfa sérstaka meðferð. Þegar fasteignamat hækkar þá hækka fasteignagjöldin sjálfkrafa ef álagningarprósentan stendur óbreytt, án þess að nokkur sveitarstjórn þurfi að taka ákvörðun um það. Það er pólitískt þægileg leið til að hækka álögur í kyrrþey. Við lækkum prósentuna svo reikningurinn standi í stað. Annars væri núllið í gjaldskránum lítils virði. Þetta kostar sitt. Tekjur sveitarfélagsins verða minni en ella, á sama tíma og allt sem við kaupum hækkar í verði. Það þýðir aðhald í rekstrinum á næsta ári, og við tökum það á okkur frekar en að senda íbúunum reikninginn. Byggðarráð skoraði líka á fyrirtæki og aðra einkaaðila að halda hækkunum sínum í lágmarki. Ég tek undir það og bæti einu við: Ef lítið sveitarfélag á Norðurlandi vestra getur haldið gjaldskrám sínum óbreyttum, hvers vegna getur ríkissjóður ekki haldið sínum hækkunum innan verðbólgumarkmiðsins? Ríkisstjórnin þykist líka eiga sitt núll, meint hallalaus fjárlög árið 2027, og það á að nást með hærri sköttum og gjöldum á almenning. Okkar núll er annars eðlis. Reikningarnir frá sveitarfélaginu hækka ekki á næsta ári. Þetta er núll sem heldur. Nú er komið að ríkinu. Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húnaþing vestra Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun