Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Birgir Olgeirsson skrifar 24. september 2026 15:24 Pawel Bartoszek segir Alþingi ekki þurfa að bíða eftir niðurstöðu Landsréttar í máli Smáríkisins. Vísir/Vilhelm Einkareknum fyrirtækjum yrði heimilt að selja áfengi í vefverslun með leyfi sýslumanns samkvæmt frumvarpi sem Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, hefur lagt fram á Alþingi. Hann tekur við málinu af Grími Grímssyni, þingmanni Viðreisnar, sem flutti frumvarp sama efnis á síðasta þingi og er nú meðflutningsmaður.
Áfengi er þegar selt á netinu hér á landi. Pawel segir skynsamlegt að setja þeirri starfsemi skýrar reglur sem taki mið af viðskiptafrelsi og áhyggjum af auknu aðgengi að áfengi. Hann vonast til góðrar umræðu um frumvarpið á Alþingi. Vill ekki bíða niðurstöðu Landsréttar Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi í apríl forsvarsmann Smáríkisins fyrir að hafa selt hvítvínsbelg í netverslun árið 2024. Varan var á lager hér á landi og afhent kaupanda með sendli. Dómurinn taldi þessi viðskipti hafa farið fram á Íslandi og brotið gegn einkarétti ÁTVR. Maðurinn var dæmdur til að greiða 100 þúsund krónur í sekt og dómnum var áfrýjað til Landsréttar. Grímur Grímsson er meðal flutningsmanna frumvarpsins, sem gerir ráð fyrir að aldur kaupanda sé staðfestur bæði við pöntun áfengis og afhendingu þess.Vilhelm Pawel telur ekki að Alþingi þurfi að bíða niðurstöðu málsins þar. Hann vísar til þrískiptingar ríkisvaldsins: Alþingi ákveði hvernig lögin eigi að vera en dómstólar skeri úr um mál samkvæmt gildandi lögum. Þótt Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um viðskiptin í Smáríkismálinu geti þingið ákveðið að heimila innlenda netsölu framvegis með skýrum skilyrðum. Pawel segir jafnframt mikilvægt að fyrirtæki sem selja áfengi á netinu viti hvaða skilyrði þau þurfi að uppfylla og hvaða afleiðingar brot á þeim geti haft. Aldur kannaður við kaup og afhendingu Fyrirtæki þyrftu samkvæmt frumvarpinu að sækja um sérstakt leyfi fyrir vefverslun með áfengi til sýslumanns. Kaupandi yrði að staðfesta aldur sinn með rafrænum skilríkjum við kaup. Sá sem afhendir þyrfti síðan að kanna aldur viðtakanda og einungis mætti afhenda áfengið kaupandanum sjálfum. Ráðherra myndi setja nánari reglur um afhendinguna. Fyrsta leyfið gilti í eitt ár. Yrði það endurnýjað gilti það ótímabundið, með fyrirvara um afturköllun samkvæmt áfengislögum. Pawel nefnir afhendingu áfengis til fólks undir tvítugu sem dæmi um brot sem rekstraraðilar myndu ekki taka létt ef leyfið væri í húfi. Vefverslunarleyfið yrði sérstök undantekning frá einkarétti ÁTVR til smásölu áfengis. Í greinargerðinni kemur fram að leyfishafar gætu einnig haft áfengi til sýnis á afhendingarstað, enda færu kaupin fram á netinu. Aldursskilyrðin við afhendingu ættu samkvæmt greinargerðinni einnig við um áfengi sem fólk flytur sjálft inn, eftir því sem við á um pantanir frá erlendum vefverslunum. Innlendar verslanir fái leyfi til netsölu Í greinargerð frumvarpsins er bent á að fólk geti þegar keypt áfengi í erlendum netverslunum og flutt það inn til eigin neyslu. Innlendar verslanir hafi hins vegar ekki sambærilega heimild til vefsölu vegna einkaréttar ÁTVR. Þrátt fyrir það starfi áfengisvefverslanir hér á landi, sumar með lager og starfsfólk á Íslandi. Frumvarpið á að veita innlendum seljendum leyfi til starfseminnar og setja skilyrði um kaup og afhendingu. Frumvarpið er samkvæmt greinargerðinni nær samhljóða drögum dómsmálaráðuneytisins frá 2024. Um þau bárust 26 umsagnir. Í greinargerðinni segir að flestar hafi snúist um áhyggjur af auknu aðgengi að áfengi og áhrifum þess á markmið áfengislaga. Flutningsmenn vísa í greinargerðinni til áfengistalna Hagstofunnar og telja þær benda til þess að netsala hafi ekki aukið neyslu. Samkvæmt uppfærðri töflu Hagstofunnar jafngilti áætluð sala 7,8 lítrum af hreinum vínanda á hvern íbúa 15 ára og eldri árið 2015, 8,1 lítra árið 2022, 7,7 lítrum árið 2023 og 7,6 lítrum árið 2024.
Áfengi Alþingi Netverslun með áfengi Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent „Svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi“ Innlent Dagný Ósk látin Innlent Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Innlent Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Fleiri fréttir Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborðið í heild sinni: Klukkan tifar og staðan viðkvæm Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Þakplötur og trampólín á flugi Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns til ákæranda Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Sjá meira