Holmes flutt á áfangaheimili Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. september 2026 09:02 Elizabeth Holmes, stofnandi fallna heilbrigðisfyrirtækisins Theranos, og Nathan Fielder, grínisti og viðskiptafræðingur. vísir/epa/getty Elizabeth Holmes, stofnandi fallna heilbrigðisfyrirtækisins Theranos sem olli einu mesta fjaðrafoki Kísildals, verður flutt úr lágmarksöryggisfangelsi á áfangaheimili í ágúst á næsta ári.
Dagblaðið Guardian greinir frá. Holmes var dæmd í meira en ellefu ára fangelsi árið 2022 fyrir að svíkja fjárfesta í Theranos-skandalnum svokallaða. Holmes hafði verið hampað sem nýja kvenkyns Steve Jobs eftir að heilbrigðisfyrirtæki hennar Theranos hafði vakið gífurlega athygli. Í stuttu máli sérhæfði fyrirtækið sig í meintri byltingarkenndri tækni við blóðprufur. Tæknin átti að krefjast aðeins eins blóðdropa úr sjúklingum til að greina ástand þeirra. Tæknin átti að geta greint krabbamein og fleiri sjúkdóma úr sýni sem var tekið úr fingurgómi sjúklinga. Síðar kom í ljós að ekki reyndist innistæða fyrir því sem tæknin átti að geta gert. Að mati dómstóla sveik Holmes hundruð milljóna dala úr vösum fjárfesta og var henni gert að greiða þeim skaðabætur. Mikill áhugi hefur vaknað um mál Holmes undanfarið eftir að Nathan Fielder, kanadískur grínisti og viðskiptafræðingur, tilkynnti að heimildarmynd væri væntanleg frá honum um mál hennar. Stiklu fyrir myndina má berja augum hér að neðan. Í myndinni sem heitir You Can See Everything dvelur Fielder á heimili Holmes og fylgir henni eftir áður en hún afplánar fangelsisdóm sinn. Fielder verður þar hluti af lífi hennar og sambýlismanns hennar, Billy Evans. Myndin verður síðan að þriggja ára rannsókn á Holmes, sjálfsmynd hennar og því hvað sé hægt að segja að sé raunverulegt þegar viðfangsefnið er meðvitað um að myndavélin fylgist með öllu. Alríkisfangelsismálastofnun Bandaríkjanna tilkynnti þeim sem urðu fyrir barðinu á Holmes um flutninginn. Hún er nú vistuð í lágmarksöryggisfangelsi í borginni Bryan í Texas-ríki. Dómur hennar hefur verið styttur þó nokkrum sinnum. „Endurskoðaður dómur Holmes endurspeglar enn réttláta refsingu fyrir alvarlegt brot hennar og þjónar sem áminning um að vogarskálar réttvísinnar munu ná jafnvægi,“ er haft eftir héraðsdómara á svæðinu.
Elizabeth Holmes og Theranos Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent Fleiri fréttir Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Sjá meira