Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar 25. september 2026 12:32 Undanfarið hefur mikið verið rætt um kjaradeilu flugvirkja og Icelandair. Þar sem sambýlismaður minn er flugvirki stendur þessi umræða mér nærri og mig langar því að deila mínu sjónarhorni. Sérstaklega vegna þess að mér finnst umræðan á köflum hafa orðið þannig að deilan snúist fyrst og fremst um „græðgi“ flugvirkja og kröfur þeirra um verulegar launahækkanir. Málið er hins vegar töluvert flóknara en svo. Ég held að fæst okkar geri sér fyllilega grein fyrir því hversu umfangsmikið, sérhæft og ábyrgðarmikið starf flugvirkja er. Þegar við setjumst upp í flugvél treystum við því að hún sé örugg og flughæf en hugsum kannski sjaldan um fólkið sem stendur á bak við það öryggi. Það er ef til vill einmitt merki um hversu vel starfið er unnið – við treystum því einfaldlega að vélin sé örugg þegar við stígum um borð. Kjaradeilan snýst þó ekki eingöngu um eina prósentutölu eða launahækkun. Samkvæmt upplýsingum Flugvirkjafélags Íslands snýst ágreiningurinn meðal annars um launaþróun, vaktakerfi, notkun verktaka, skipulag starfa og fyrirsjáanleika í vinnu- og fjölskyldulífi. Félagið hefur jafnframt bent á að í síðasta kjarasamningi, sem gerður var árið 2020 við mjög sérstakar aðstæður, hafi flugvirkjar tekið tillit til erfiðrar stöðu Icelandair. Meðal annars hafi verið samið um tveggja ára launafrystingu, enga afturvirkni og enga vísitölutengingu. Þess vegna finnst mér mikilvægt að horfa á heildarmyndina áður en ályktað er að flugvirkjar séu einfaldlega að fara fram á 25–30% launahækkun. Icelandair hefur metið kostnaðaráhrif krafna á þeim nótum en Flugvirkjafélagið mótmælir því að sú tala lýsi beinni launakröfu félagsmanna. Félagið hefur einnig bent á að grunnlaun flugvirkja hjá Icelandair hafi hækkað um 27,2% á árunum 2019–2025, á meðan grunnlaun samanburðarhóps iðnfræðinga hafi hækkað um 50,8%. Þetta eru upplýsingar sem koma frá Flugvirkjafélaginu og því eðlilegt að hafa í huga að þær eru settar fram frá sjónarhóli annars aðila deilunnar. Þær eru engu að síður hluti af þeirri mynd sem flugvirkjar sjálfir telja mikilvægt að komi fram í umræðunni. Það er líka auðvelt að sjá háar tölur um „meðallaun“ flugvirkja og draga ályktanir út frá þeim einum og sér. Slíkar tölur segja þó ekki endilega alla söguna. Heildarlaun geta meðal annars endurspeglað vaktavinnu, nætur- og helgarvinnu, yfirvinnu og stjórnunarstörf. Samkvæmt launatöflu sem Flugvirkjafélagið hefur birt eru grunnlaun flugvirkja með sveinspróf og fimm ára starfsreynslu til dæmis 698.499 krónur á mánuði fyrir skatt. Verkfall er aldrei eitthvað sem fólk óskar sér. Slíkar aðgerðir geta haft veruleg áhrif á fyrirtækið, farþega, ferðaþjónustuna og ekki síst flugvirkjana sjálfa og fjölskyldur þeirra. Það er þó ástæða fyrir því að fólk grípur til vinnustöðvunar eftir langvarandi samningaviðræður. Flugvirkjar hafa verið samningslausir um nokkurt skeið og niðurstaða atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun sýnir að staðan nýtur mikils stuðnings innan stéttarinnar. Alls samþykktu 88,3% þeirra sem greiddu atkvæði vinnustöðvun og kjörsókn var 92%. Fyrir mig er þetta mál líka persónulegt. Ég er ótrúlega stolt af sambýlismanni mínum og því starfi sem hann sinnir. Ég sé frá fyrstu hendi að á bak við starfsheitið „flugvirki“ er mikil þekking, ábyrgð og fagmennska. Ég þekki líka áhrif vaktavinnunnar á fjölskyldulífið. Þegar annar aðilinn vinnur á kvöldin, nóttunni, um helgar og á hátíðisdögum þarf fjölskyldulífið óhjákvæmilega að taka mið af því. Það er auðvitað eðlilegt að fólk hafi mismunandi skoðanir á kjaradeilunni og að aðilar deilunnar setji fram ólík sjónarmið. En áður en flugvirkjar eru afgreiddir sem gráðugir finnst mér sanngjarnt að kynna sér hvað raunverulega liggur að baki deilunni og hvað felst í starfinu þeirra. Í opinberri umræðu hafa jafnvel fallið þung orð á borð við „fjárkúgun“. Slík orðræða gerir lítið til að varpa ljósi á flókið ágreiningsmál þar sem báðir aðilar hafa hagsmuna að gæta. Þegar öllu er á botninn hvolft viljum við öll það sama þegar við stígum um borð í flugvél: að fólkið sem ber ábyrgð á öryggi hennar hafi þekkinguna, aðstæðurnar og starfsumhverfið til að sinna þeirri ábyrgð eins vel og mögulegt er. Ég styð flugvirkja í þeirra baráttu. ✈️ Höfundur er maki flugvirkja og meistaranemi í félagsráðgjöf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar