Innherji

Er­lendir bókunar­risar sagðir taka til sín sí­fellt stærri hluta hagnaðarins

Hörður Ægisson skrifar
Kröfur alþjóðlegra bókunarrisa á borð við Booking.com um eigin hlutdeild í tekjum af ferðamönnum eru sagðar afar háar og erfitt hafi reynst fyrir lítil og meðalstór íslensk fyrirtæki að standa gegn þeim vegna takmarkaðs kaupendastyrks.

Vaxandi ítök alþjóðlegra bókunar- og sölusíðna þrengja verulega að kaupendastyrk íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja og taka til sín stóran hluta tekna af erlendum ferðamönnum. Hjá dæmigerðu fyrirtæki í greininni er bein sala til ferðamanna aðeins talin nema um 15 til 30 prósentum af heildartekjum en um 70 prósent sölunnar fer í gegnum sölusíður, ferðaskrifstofur eða aðra milliliði.

Tengdar fréttir

Áhætta að útbúa íslenskt bókunarkerfi

Ráðherra segir áhættusamt að stofna íslenska bókunarþjónustu til höfuðs erlendum. Framkvæmdastjóri SAF vill skoða málið og leggjast í greiningu.

Hótelstjórum stillt upp við vegg

Hótelstjórar eru mjög ósáttir við háar söluþóknanir bókunarsíðnanna Booking og Expedia. Þeir eru þó háðir þeim að miklu leyti. Framkvæmdastjóri SAF segir að séríslensk bókunarsíða hafi komið til tals.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×