Innherji

Tíu ára raun­vextir orðnir nær þeir sömu og í Banda­ríkjunum

Hörður Ægisson skrifar
Þrátt fyrir að raunvaxtamunur Íslands sé að dragast saman gagnvart sumum viðskiptalöndum, sérstaklega Bandaríkjunum, þá hefur sú þróun alls ekki haft áhrif á gengi krónunnar hingað til.
Þrátt fyrir að raunvaxtamunur Íslands sé að dragast saman gagnvart sumum viðskiptalöndum, sérstaklega Bandaríkjunum, þá hefur sú þróun alls ekki haft áhrif á gengi krónunnar hingað til.

Raunvaxtamunur Íslands gagnvart Bandaríkjunum hefur minnkað hratt á undanförnum mánuðum og er nú svo komið að tíu ára raunvextir eru nánast þeir sömu í löndunum tveimur. Þróunin, sem skýrist bæði af þrálátri verðbólgu hér heima og hækkandi langtímavöxtum erlendis, getur dregið úr hlutfallslegu aðdráttarafli íslenskra eigna þrátt fyrir háa stýrivexti.


Tengdar fréttir

Stöðug­leiki í vaxtaþróun langra ríkis­bréfa merki um „seiglu“ ís­lenska markaðarins

Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá sumum ríkjum.

Mikil gengis­styrking krónunnar knýr Seðla­bankann í sín fyrstu inn­grip í eitt ár

Eftir mikla gengisstyrkingu krónunnar að undanförnu þá sá Seðlabankinn ástæða til að stíga inn á millibankamarkaðinn í dag með sérstökum inngripum og keypti gjaldeyri til að vega á móti gengishækkuninni. Þetta eru fyrstu gjaldeyrisinngrip bankans í ríflega eitt ár en raungengi krónunnar er núna í hæstu hæðum.

Er­lend staða ís­lenska þjóðar­búsins ein sú besta meðal ríkja í Evrópu

Aðeins fáein Evrópuríki geta státað sig af því að vera með sterkari erlenda stöðu í samanburði við Ísland en hrein eignastaða þjóðarbúsins í hlutfalli við landsframleiðslu hefur núna haldist yfir 40 prósent frá ársbyrjun 2024. Áratugur er liðin síðan Ísland náði þeim áfanga að vera hreinn útflytjandi fjármagns og hefur það meðal annars átt ríkan þátt í meiri stöðugleika íslensku krónunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×