Telja að erlend fjárfestingaráform Íslandsbanka séu komin á ís
Líklegt er að Íslandsbanki hafi að minnsta kosti frestað áformum sínum um fjárfestingar í erlendri fjármálastarfsemi, að mati hlutabréfagreinanda, en mikil endurkaup eigin bréfa og hraður vöxtur erlendra útlána benda til þess að bankinn hafi breytt áherslum við ráðstöfun á umfram eigið fé. Þá mun hækkun sérstaks bankaskatts gera Íslandsbanka erfiðara um vik að ná arðsemismarkmiðum sínum til lengri tíma og setur bankann í lakari stöðu að því leyti en helstu keppinauta hans.
Tengdar fréttir
Auknar vaxtatekjur sagðar „skammtíma hvalreki“ sem gangi til baka á næsta ári
Útlit er fyrir að hagnaður Íslandsbanka verði talsvert meiri á seinni hluta ársins en þeim fyrri, samkvæmt nýrri greiningu, meðal annars samhliða stærri efnahagsreikningi og jákvæðum áhrifum hagræðingaraðgerða. Vaxtatekjur hafa drifið afkomuna áfram en greinendur telja að hluti tekjuaukningarinnar sé skammtímaávinningur af mikilli verðbólgu sem gangi til baka þegar líður á næsta ár.
Norræni bankinn ABG SC væri „afar áhugaverður kostur“ fyrir Íslandsbanka
Áform Íslandsbanka um að ráðstafa mögulega allt að fimmtán milljörðum af umfram eigin fé sínu til fjárfestinga erlendis vekja sérstaklega athygli, að sögn hlutabréfagreinenda, sem telur að kaup á norræna fjárfestingabankanum ABG Sundal Collier væri „afar áhugaverður kostur“ í því samhengi.
Stjórnendur Íslandsbanka á góðri leið með ná uppfærðum markmiðum
Líklegt er að stjórnendur Íslandsbanka muni ná strax á þessu ári tökum á kostnaðarhlutfallinu en að uppfærð markmið um meira en 13 prósenta arðsemi eigi eftir að nást á árinu 2027, samkvæmt nýrri virðismatsgreiningu. Fjárfestum er ráðlagt að bæta við sig bréfum í bankanum sem er sagður talsvert undirverðlagður á markaði.