Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Aron Guðmundsson skrifar 28. september 2026 18:55 Kjaftasögurnar eru ekki að fara vel í Djibril Cisse Vísir/Getty Djibril Cisse, fyrrverandi sóknarmaður Queens Park Rangers, lætur fyrrverandi knattspyrnudómarann Mike Dean og leikmanninn Wayne Rooney heyra það í færslu á samfélagsmiðlinum X fyrir ummæli sem þeir létu falla fyrir tæpu ári síðan í þættinum Overlap.
Klippa, með ummælum Mike Dean og Wayne Rooney úr þættinum, hefur farið á flug á samfélagsmiðlum á undanförnum dögum eða eftir að því var lekið að Manchester City hafi verið fundið sekt í 114 af þeim 115 ákæruliðum sem lágu fyrir í málsókn sem enska úrvalsdeildin höfðaði gegn félaginu fyrir brot á fjármálareglum deildarinnar. Umræðan í Overlap fyrir tæpu ári síðan sneri að leik Manchester City gegn Queens Park Rangers í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar árið 2012 sem er tímabil sem nokkrir af ákæruliðunum gegn Manchester City snúa að. Leikurinn er minnisstæður í meira lagi fyrir endurkomu Manchester City sem lenti 2-1 undir í leiknum en endaði á að vinna leikinn 3-2 og tryggja sér Englandsmeistaratitilinn. Í Overlap í nóvember í fyrra sagði Mike Dean, sem dæmdi umræddan leik, að honum hefði fundist það skrítið hvernig QPR hefði sparkað boltanum til Manchester City eftir að Edin Dzeko hafði jafnað metin fyrir liðið á 92. mínútu. Í leiknum sparkar leikmaður QPR boltanum í átt að öðru hornfánanum á vallarhelmingi Manchester City þar sem að hann fer út af. Vildu Mike Dean og Rooney meina að QPR hafi komist að því á meðan leiknum stóð að sæti þeirra í deildinni væri tryggt eftir jafntefli Bolton við Stoke City. Rooney, sem var leikmaður Manchester United á þessum tíma, benti einnig á að QPR hafi verið með nokkra fyrrverandi leikmenn Manchester City innan sinna herbúða. Eftir leik mátti svo sjá Djibril Cisse, leikmann QPR, fagna með Samir Nasri samlanda sínum og leikmanni Manchester City. I’m not gonna let you people talk shit like that Let’s have a proper meeting and talk about it Cause there is now way I gonna accept your bullshit anymore So let’s do it https://t.co/7NfWcNpHIN— Djibril Cisse (@DjibrilCisse) September 28, 2026 Í ljósi nýjustu frétta af Manchester City vilja margir tengja atburðarrás þessa leiks við málsóknina sem enska úrvalsdeildin höfðaði á hendur félaginu. Kjaftasögur fóru á kreik þess efnis að leikmenn QPR hafi fengið væna summu fyrir að tapa leiknum frá fjárfestingafélagi í Abu Dhabi. Sögur sem ekki hafa fylgt haldbær sönnunargögn að baki. Þess vegna fór myndbandið með ummælum Dean og Rooney aftur á flug og greip athygli Cisse sem tekur því ekki þegjandi og hljóðalaust. „Ég ætla ekki að láta ykkur komast upp með að tala svona skít,“ skrifar Cisse í færslu á samfélagsmiðlinum X. „Við skulum eiga alvöru fund og ræða þetta. Það er ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði.“
Enski boltinn Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira