Fjármál Manchester City til rannsóknar

Fréttamynd

Myndi henda öllum medalíum í ruslið

Roy Keane segir ekkert að marka leikmenn Manchester City sem segist hafa átt skilið að vinna þá titla sem þeir unnu með félaginu, vegna framgöngu sinnar innan vallar. Sjálfur myndi hann kasta medalíunum í ruslið.

Enski boltinn
Fréttamynd

Stjórnar­for­maður Manchester City tjáir sig

Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Manchester City, hefur tjáð sig í fyrsta sinn opinberlega eftir að fréttir bárust af því í gær að Manchester City hafði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í máli sem enska úrvalsdeildin höfðaði gegn félaginu fyrir brot á fjármálareglum deildarinnar.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ó­vissa í Ind­landi lætur City selja

City Football Group, sem eiga Manchester City og fleiri félög, hafa losað sig við eignarhlut sinn í Mumbai City FC vegna mikillar óvissa í indverska boltanum. Deildarkeppnin þar í landi hefur verið stopp síðan í sumar.

Fótbolti
Fréttamynd

Grínaðist með 115 á­kærur City: „Ég endur­tek, þetta var grín“

Arne Slot, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, sló á létta strengi á blaðamannafundi í dag er hann var spurður út í samningsmál Mohamed Salah en samningur hans við félagið rennur út eftir yfirstandandi tímabil. Slot dró þær 115 ákærur sem Manchester City á yfir höfði sér inn í umræðuna og vildi svo ítreka að hann hafi verið að grínast með því.

Enski boltinn
Fréttamynd

115 kærur Manchester City teknar fyrir á mánu­dag

Réttarhöld vegna 115 ákæra ensku úrvalsdeildarinnar á hendur Manchester City vegna meintra fjármálabrota hefst á mánudaginn. City er sakað um að hafa brotið reglur um útgjöld. Félagið hafi ekki veitt nákvæmar upplýsingar á níu ára tímabili, auk þess að hnekkja reglum UEFA um fjárhagslega háttvísi.

Enski boltinn
Fréttamynd

Vill komast hjá því að af­henda City bikarinn

Richard Masters, fram­kvæmda­stjóri ensku úr­vals­deildarinnar mun vera við­staddur leik Arsenal og E­ver­ton á Emira­tes leik­vanginum í Lundúnum í komandi loka­um­ferð deildarinnar þar sem að bar­áttan um Eng­lands­meistara­titilinn ræðst. Það gerir Masters þrátt fyrir að lík­legra þyki að Eng­lands­meistara­titillinn verði af­hentur í Manchester­borg.

Enski boltinn