Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Aron Guðmundsson skrifar 12. október 2026 07:56 Leikmenn Manchester City fagna marki Erling Haaland í gær Vísir/Getty Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær. Í skugga umfangsmikils hneykslismáls sótti Manchester City þrjú stig á Anfield gegn Liverpool og Oliver Glasner átti enga draumaendurkomu á sinn gamla heimavöll.
Það voru margir sem biðu eftir því að sjá hvernig móttökur Manchester City myndi fá á Anfield fyrir leik sinn gegn Liverpool í gær, fyrsta leik liðsins frá því að dómur var kveðinn upp í umfangsmiklu dómsmáli sem enska úrvalsdeildin höfðaði gegn Manchester City sem var fundin sekt í 114 ákæruliðum af 115. Klippa: Liverpool - Manchester City 0-3 Manchester City gekk á lagið í seinni hálfleik eftir að Liverpool hafði misst mann af velli með rautt spjald og unnu lærisveinar Enzo Maresca að lokum 3-0 sigur með mörkum frá Erling Haaland, Jérémy Doku og Rayan Cherki. Manchester City vermir toppsæti deildarinnar en Liverpool er í 9. sæti og hefur enn ekki unnið heimaleik í deildinni á tímabilinu nú þegar sex umferðir eru búnar. Erfið endurkoma Á Selhurst Park í Lundúnum sneri Oliver Glasner, fyrrverandi knattspyrnustjóri Crystal Palace, aftur á sinn gamla heimavöll. Nú sem stjóri Nottingham Forest og óhætt er að segja að Glasner hafi ekki fengið draumaendurkomu. Klippa: Crystal Palace - Nottingham Forest 3-1 Forest byrjaði hins vegar betur með marki strax á 3. mínútu en mörk frá Kamada, Jefferson Lerma og Yeremi Pino sáu til þess að Crystal Palace sneri leiknum sér í vil og sigldi að lokum heim 3-1 sigri. Palace er í 12. sæti deildarinnar en Nottingham Forest í því fjórtánda. Nýliðarnir halda áfram að sækja stig Þá gerðu nýliðar Hull jafntefli við Everton á heimavelli. Lokatölur þar urðu 2-2. Eftir að hafa lent undir snemma í seinni hálfleik sneri Everton stöðunni sér í vil með mörkum frá Kieran Dewsbury-Hall og Thierno Barry. Mohamed Belloumi tókst hins vegar að jafna metin fyrir Hull með marki á 74. mínútu og þar við sat. Hull er í 8. sæti með níu stig en Everton í fimmta sæti með einu stigi meira. Klippa: Hull - Everton 2-2
Enski boltinn Manchester City Liverpool FC Crystal Palace FC Nottingham Forest Hull City AFC Everton FC Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Fleiri fréttir Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ Sjá meira