Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi Samúel Karl Ólason skrifar 29. september 2026 10:58 Frá mótmælum gegn hernámi Rússa á Oleskhy sem haldin voru í Brussel í gær. Um 24 þúsund manns bjuggur þar fyrir stríð en óljóst er hve margir eru þar núna. Áætlanir reika frá tvö til sex þúsund og er fólkið talið búa við hræðilegar aðstæður. Getty/Daniel Gnap Íbúar Oleshky, sem er bær undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu, hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði. Þá skortir mat og aðrar nauðsynjar og hafa borist fregnir af því að fólk sé að borða gras og jurtir til að reyna að halda lífi. Þar að auki eru ítrekað gerðar drónaárásir gegn þeim og hefur aðstæðum í bænum verið lýst sem „helvíti á jörðu“.
Rússar eru sagðir hafa umkringt bæinn með jarðsprengjum. Ráðamenn í Úkraínu óttast um líf þessa fólks, sem talið er að séu um tvö þúsund talsins. Rússar eru sagðir meina fólkinu að yfirgefa bæinn og hafa rússneskir hermenn birt myndefni af líkum fólks við jarðar borgarinnar. Fólkið er talið hafa reynt að flýja frá Oleshky. Michael O‘Flaherty, yfirmaður mannréttindamála hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, lýsti á dögunum yfir áhyggjum vegna ástandsins. Hann sagði íbúa í bráðri hættu og sagði að það væri á höndum Rússa að útvega fólkinu sem það hefði hernumið matvæli og aðrar nauðsynjar. I am alarmed by the rapidly deteriorating humanitarian crisis in Oleshky, a town in the temporarily occupied parts of the Kherson region of Ukraine. Civilians, including children, are trapped without sufficient food, medicines, medical care, running water or electricity.… pic.twitter.com/jRvkiDPe2c— Commissioner for Human Rights (@CommissionerHR) September 25, 2026 Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, vakti einnig athygli á ástandinu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Sakaði hann Rússa um að vera að svelta íbúa Oleshky til dauða með vísvitandi hætti. Úkraínumenn notuðu um helgina dróna til að flytja mat og aðrar nauðsynjar til bæjarins, sem er sunnan megin við Dnipró og þar af leiðandi á yfirráðasvæði Rússa. Forsvarsmenn hersins segjast hafa flutt um fjögur tonn af mat til bæjarins en óljóst sé hversu mikið af því endaði í höndum rússneskra hermanna, samkvæmt frétt Guardian. This tells you everything you need to know about what is happening in Oleshky.Ukraine is finding ways to deliver food to our people even under temporary occupation. Russia is reportedly shooting down drones carrying that food and confiscating humanitarian aid meant for starving… https://t.co/N5VZZTLBCm— Andrii Sybiha 🇺🇦 (@andrii_sybiha) September 27, 2026 Fyrr í mánuðinum viðurkenndi Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, að ástandið í bænum væri alvarlegt. Hann sakaði þó Úkraínumenn um að bera ábyrgð á stöðunni. Þeir væru að stöðva sendingar nauðsynja til íbúa bæjarins. Í skilaboðum til blaðamanna Guardian segja íbúar að staðan sé gífurlega alvarleg. Þau borði eina máltíð á dag, sem sé yfirleitt súpa sem gerð sé með jurtum sem finnast í blómapottum í bænum og illgresi. Bannað að grafa lík íbúa Blaðamenn BBC hafa einnig náð að ræða við íbúa Oleshky. Ein kona sagði íbúa undir linnulausum árásum. Vísaði hún til þess að hjón sem hún þekkti hefðu farið til nágrannabæjar að verða sér úti um mat. Þeim hafi tekist það en ekki tekist að snúa aftur áður en útgöngubann sem Rússar hafa sett á fór í gildi. Hjónin voru drepin með sjálfsprengidrónum á leið þeirra inn í bæinn. Blaðamenn BBC segjast hafa heyrt margar sambærilegar sögur frá Oleshky. Haft er eftir sérfræðingum Sameinuðu þjóðanna að þeir hafi staðfest að minnsta kosti 29 dauðsföll óbreyttra borgara í Oleshky á þessu ári. Að minnsta kosti 54 eru sagðir hafa særst. Heimamenn segja raunverulega fjöldann mun hærri. Þá segja íbúar að Rússar hafi meinað þeim að grafa fólk sem deyr í bænum, nema það deyi af náttúrulegum orsökum. Ein kona sem ræddi við blaðamenn segir að í einhverjum tilfellum hafi lík legið á götum bæjarins frá því í desember. Í frétt BBC segir að þetta hafi verið staðfest með mjög grófum myndum sem blaðamennirnir hafi fengið sendar.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Vladimír Pútín Hernaður Tengdar fréttir Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Úkraínskir hermenn hafa rekið Rússa á brott frá meira landsvæði í norðanverðu Dónetsk-héraði, þar sem Úkraínumenn hafa staðið í gagnsókn gegn Rússum um nokkurt skeið. Sókninni er ætlað að gera Rússum erfiðara að leggja undir sig „virkjabeltið“ svokallaða í Dónetsk og þar með restina af Donbas-svæðinu. 28. september 2026 16:38 Vilja formlega afsökun frá Selenskí Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa farið fram á að kollegar þeirra í Úkraínu biðji þá formlega afsökunar. Er það eftir að Vólódímír Selenskí sagði frá því að norðurkóreskir hermenn sem voru handsamaðir í Kúrsk í Rússlandi hefðu viljað fara til Suður-Kóreu og voru sendir þangað. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, segir að með því að segja frá þessu hafi Selenskí brotið gegn samkomulagi milli ríkjanna. 28. september 2026 10:00 Þriggja turna þras í furstadæmunum Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 25. september 2026 10:29 Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Umfangsmiklar framkvæmdir á lóð Vladimírs Pútín í Sochi í suðurhluta Rússlands virðast vera að klárast. Lúxushús forsetans þar kallast Bocharov Ruchey og var jafnað við jörðu árið 2024 en nú virðist sem enn stærra hús hafi risið þar í staðinn. Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkinu og unnin af manni sem tengist vini Pútíns persónulega. 25. september 2026 08:01 Veturinn verði Rússum erfiður Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, varaði yfirvöld í Moskvu við því í gær að Úkraínumenn myndu gera veturinn kostnaðarsaman fyrir Rússa, samþykki þeir ekki orkuvopnahlé. Ráðamenn í Úkraínu og bandamenn þeirra hafa lýst yfir vilja til að semja við Rússa um að hætta árásum á orkuinnviði og kornflutninga um Svartahaf. 24. september 2026 07:57 Mest lesið „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Sjá meira
Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Úkraínskir hermenn hafa rekið Rússa á brott frá meira landsvæði í norðanverðu Dónetsk-héraði, þar sem Úkraínumenn hafa staðið í gagnsókn gegn Rússum um nokkurt skeið. Sókninni er ætlað að gera Rússum erfiðara að leggja undir sig „virkjabeltið“ svokallaða í Dónetsk og þar með restina af Donbas-svæðinu. 28. september 2026 16:38
Vilja formlega afsökun frá Selenskí Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa farið fram á að kollegar þeirra í Úkraínu biðji þá formlega afsökunar. Er það eftir að Vólódímír Selenskí sagði frá því að norðurkóreskir hermenn sem voru handsamaðir í Kúrsk í Rússlandi hefðu viljað fara til Suður-Kóreu og voru sendir þangað. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, segir að með því að segja frá þessu hafi Selenskí brotið gegn samkomulagi milli ríkjanna. 28. september 2026 10:00
Þriggja turna þras í furstadæmunum Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. 25. september 2026 10:29
Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Umfangsmiklar framkvæmdir á lóð Vladimírs Pútín í Sochi í suðurhluta Rússlands virðast vera að klárast. Lúxushús forsetans þar kallast Bocharov Ruchey og var jafnað við jörðu árið 2024 en nú virðist sem enn stærra hús hafi risið þar í staðinn. Framkvæmdin er fjármögnuð af ríkinu og unnin af manni sem tengist vini Pútíns persónulega. 25. september 2026 08:01
Veturinn verði Rússum erfiður Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, varaði yfirvöld í Moskvu við því í gær að Úkraínumenn myndu gera veturinn kostnaðarsaman fyrir Rússa, samþykki þeir ekki orkuvopnahlé. Ráðamenn í Úkraínu og bandamenn þeirra hafa lýst yfir vilja til að semja við Rússa um að hætta árásum á orkuinnviði og kornflutninga um Svartahaf. 24. september 2026 07:57