Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Kjartan Kjartansson skrifar 2. október 2026 10:02 Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, segir nú fulla ferð setta á að endurheimta votlend á ríkisjörðum. Vísir Seinagangur í skipulagskerfinu og áhugaleysi landeigenda eru meðal ástæðna þess að mun hægar hefur gengið að endurheimta votlendi en stjórnvöld stefndu að. Aðeins þrettán hektarar voru endurheimtir í fyrra en stjórnvöld stefna á þrjú þúsund á ári til 2031.
Markið var sett hátt þegar stjórnvöld kynntu aðgerðaáætlun í landgræðslu og skógrækt árið 2022. Ætlunin var að endurheimta að minnsta kosti 5.300 hektara af röskuðu votlendi til ársins 2026 og 15.600 hektara til ársins 2031. Þessi háleitu markmið hafa ekki gengið eftir. Aðeins þrettán hektarar votlendis voru endurheimtir í fyrra samkvæmt tölum Umhverfis- og orkustofnunar og engir árið 2024. Í heildina hafa átta hundruð hektarar verið endurheimtir frá 2016. „Kannski var þetta fullbjartsýn áætlun á sínum tíma að ætla sér að ná þessu markmiði en það er margþætt hvers vegna hefur gengið hægar,“ segir Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógs, stofnunarinnar sem ber ábyrgð á áætluninni. „Eitt er skipulagsferli, það getur auðvitað verið flókið og fyrirstaða í því og tekið langan tíma en síðan hefur áhugi landeiganda á að taka þátt í þessu ekki verið mjög mikill. Þess vegna hefur þetta gengið hægar,“ segir Ágúst. Ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur Til mikils er að vinna fyrir íslensk stjórnvöld að ná tökum á losun frá framræstu votlendi. Það er langstærsta staka uppspretta losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Nettólosun frá framræstu landi nam rúmum fimm milljónum tonna af koltvísýringsígildum í fyrra, í kringum helmingnum af heildarlosun Íslands. Nái Ísland nettósamdrætti í losun vegna landnotkunar geta stjórnvöld notað ávinning til þess að bæta lítillega svarta stöðu í samfélagslosun þar sem útlit er fyrir að Ísland þurfi að kaupa losunarheimildir fyrir fleiri milljarða króna á næsta áratug. Til þess að gera bragarbót í endurheimt ákvað núverandi ríkisstjórn að skipta um aðferð og einbeita sér að því að stöðva losun frá ríkisjörðum. Í ár er stefnan að byrja á fimm jörðum í eigu ríkisins og endurheimta um 225 hektara votlendis. Ætlunin er að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Þannig segir Ágúst að byrja eigi á jörðum þar sem einfaldast sé að endurheimta votlendi. „Bæði jarðir sem eru ekki í nýtingu, eyðijarðir og slíkt og þar sem er tiltölulega auðvelt að komast að,“ segir hann. Krefst undirbúnings og forgangsröðunar Ekki er þó hægt að taka til óspilltra málanna án undirbúnings. Ágúst segir að áður en hafist er handa þurfi að meta ástand lands til þess að áætla væntan árangur auk þess að útvega öll tilskilin leyfi. „Engu að síður erum við að byrja strax á þessu ári með þessar nokkrar jarðir. Þetta eru á þriðja hundrað hektara á þessu ári og svo heldur meira árið 2027. Þannig að við erum kannski að ná upp undir fimmtán jörðum. Það er strax mikil breyting að koma því af stað,“ segir hann. Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar.Magnús Hlynur Hreiðarsson Ríkið situr á fjölda jarða og segir Ágúst um helming þeirra með framræsluskurðum. Forgangsraða þurfi þeim til þess að árangur náist sem allra fyrst. Ná aldrei öllum ríkisjörðunum Varðandi framtíðarsýnina eftir 2027 segir Ágúst að ef allar ríkisjarðir með framræsluskurðum yrðu endurheimtar væru það um það bil 5.600 hektarar, markmiðið í áætluninni frá 2022. „En við munum aldrei ná því öllu, það er bara ekki hægt,“ segir hann og vísar til þess að ekki sé hægt að fjarlægja alla skurði ef nýta eigi jarðir áfram til búskapar. „En allt annað er auðvitað sjálfsagt að endurheimta, allt sem er ekki í notkun.“ „Við þurfum að halda vel á spöðunum ef við ætlum að ná því en við erum í það minnsta komin af stað. Maður finnur það nú líka að það að ríkið ætlar að ganga á undan og byrja á sínu landi, þetta skiptir máli,“ segir Ágúst um 15.600 hektara markmiðið fyrir 2031. Þekking manna á málaflokknum hafi einnig vaxið gríðarlega á allra síðustu árum. „Þannig að við erum bara betur í stakk búin til þess að fást við þetta.“ Þurfa að hafa arð af sínu landi Ríkisjarðirnar hrökkva þó skammt ef ætlunin er að ná markmiðum stjórnvalda um að draga úr losun frá framræstu landi. Langstærsti hluti þess er í einkaeigu. „Við getum náð verulegum árangri með ríkisjarðirnar en það er ekki nóg. Mest af landinu sem um ræðir er í einkaeigu þannig að það þarf auðvitað að ná árangri með landeigendum líka til þess að þetta markmið náist,“ segir Ágúst. Fram að þessu hafa eigendum jarðnæðis staðið til boða opinberir styrkir til þess að endurheimta votlendi. Ágúst segir það ekki nægjanlegan hvata. Landeigendur vilji fá arð af sínu landi. „Auðvitað eru einhverjir landeigendur tilbúnir að fara út í þetta því þeir telja þetta mikilvægt og vilja nýta land sitt með þessum hætti en það eru ekki nógu margir sem eru tilbúnir í það nema þeir fái einhvers konar arð af þessu meiri en bara að fá fyrir kostnaði,“ segir forstöðumaðurinn. Geti haft atvinnu af vöktun Ýmsir möguleikar eru til staðar til þess að hvetja landeigendur til dáða í endurheimt votlendis en Ágúst segir að á endanum snúist það um fjármuni. Tiltölulega nýlega sé búið að setja fram reglugerð um hvata og stuðningsverkefni í sjálfbærri landnýtingu sem hann sér fyrir sér að hægt verði að nýta í þessu skyni. „Ef það gerist, sem við stefnum svo sannarlega að, að menn líti heildstætt á landnýtingu þá er endurheimt votlendis að sjálfsögðu þar,“ segir hann. Einnig séu möguleikar faldir í því að landeigendur geti haft atvinnu af því að vakta land sem búið sé að endurheimta. „En örugglega þarf meira til til þess að fá nægilega marga inn í þetta. Menn þurfa hreinlega að hafa af því tekjur að koma þessu í þessa landnýtingu. Vona að fleiri leggist á árarnar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hyggst kynna endurheimtarverkefni á fimm ríkisjörðum í dag. Jarðirnar eru í Sogni og Gunnarholti á Suðurlandi, Búðum á Snæfellsnesi, Brimnesgerði á Austfjörðum og Melrakkanesi á Norðausturlandi. „Við byrjum á ríkislöndunum og við erum komin á fulla ferð þar. Við ætlum að reyna að ná eins langt og við mögulega getum með það. Síðan vonumst við auðvitað til þess að fleiri leggist á árarnar með okkur og landeigendur komi í meiri mæli með okkur inn í þetta,“ segir Ágúst.
Loftslagsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skógrækt og landgræðsla Umhverfismál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Sjá meira