Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Valur Páll Eiríksson skrifar 30. september 2026 12:01 Micah Richards er niðurbrotinn yfir tíðindunum. Mike Egerton/PA Images via Getty Images Micah Richards, fyrrverandi leikmaður Manchester City, segist niðurbrotinn eftir að hafa lesið fordæmandi sektardóm ensku úrvalsdeildarinnar yfir uppeldisfélagi hans.
Óháð nefnd komst að þeirri niðurstöðu að City hefði gert „sýndarsamninga“ við fjölda viðskiptaaðila sem hluta af áætlun um að dylja leynilega fjármögnun upp á meira en 830 milljónir punda. Deildin staðfesti að City hefði verið fundið sekt í öllum ákærum sem tengjast brotum á fjármálareglum á tímabilinu 2009–10 til 2017–18, og öllum nema einni sem tengist skorti á samvinnu við rannsóknina. Félagið neitar enn öllum ásökunum og hefur frest til 2. október til að leggja fram áfrýjun. Sú áfrýjun verður lögð fram, enda neitar City áfram sök samkvæmt yfirlýsingu félagsins. Algjörlega niðurbrotinn Á umræddu níu ára tímabili vann liðið ensku úrvalsdeildina þrisvar sinnum og Richards var hluti af meistaraliðinu tímabilið 2011–12. Micah Richards var öflugur með City og þótti meðal efnilegri leikmanna Englands um tíma.MYND/AFP „Fréttirnar ollu mér áhyggjum,“ sagði hann í hlaðvarpinu The Rest is Football. „Ég sá orðin sem enska úrvalsdeildin notaði, „sýndarsamningar“ (e. sham contracts), og ég varð algjörlega niðurbrotinn,“ segir Richards en orðið blekking eða fals (e. sham) kom fyrir fimm sinnum í dómi ensku úrvalsdeildarinnar. 🗣️ @MicahRichards: "It's heartbreaking, the words they use, it's heartbreaking."Micah shares his thoughts on the Man City verdict pic.twitter.com/GUmVeleYE3— The Rest Is Football (@RestIsFootball) September 30, 2026 „Ég var hjá þessu félagi frá því ég var 14 ára. Ég myndi deyja fyrir þetta félag. Ég lét draum minn rætast hjá Manchester City. En að heyra þessar fréttir, og ekki bara ég sem fyrrverandi leikmaður, heldur stuðningsmennirnir, það sem þeir þurfa að ganga í gegnum, það er algjörlega niðurdrepandi.“ Hringdi grátandi í Richards Á meðan Richards var í unglingaakademíu City bjó hann hjá fjölskyldu á svæðinu sem hefur lengi stutt félagið. Hinn 38 ára gamli bætti við: „Maðurinn sem ég bjó hjá, hann hringdi í mig grátandi og spurði mig um upplýsingar sem ég veit ekki. Ég hef ekki svörin til að gefa honum,“ segir Richards einnig í hlaðvarpinu. „Þetta er maður sem hefur stutt félagið í rúm 60 ár og óvissan í kringum þetta er bara átakanleg. Að sjá fyrirsögn af þessu tagi um félag sem ég elska svo mikið, það hefur verið erfitt. Ef maður hlustar á fréttirnar eru þær fordæmandi,“ segir Richards og bætir við: „Ég er sorgmæddur, ég er reiður, ég er svolítið ringlaður því á hinn bóginn hefur maður hlið City á málinu.“
Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira