Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Agnar Már Másson skrifar 1. október 2026 19:30 Ingó Veðurguð í Héraðsdómi Reykjavíkur, þegar aðalmeðferð í öðru meiðyrðamáli hans fór fram. Vísir/Vilhelm Landsréttur taldi það ekki skipta máli hvort ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur um Ingó veðurguð hafi verið sett fram í kaldhæðni enda væri ekki hægt að túlka þau á annan veg en að Ingó hefði nauðgað ungum konum og beitt þær ofbeldi. Ummælin voru dæmd dauð og ómerk.
Nú hefur hefur dómur Landsréttar í málinu verið birtur en greint var frá því á Vísi í dag að Landsréttur hefði dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingólfs Þórarinssonar, Ingós veðurguðs, dauð og ómerk og gert henni að greiða Ingólfi 350 þúsund krónur auk einnar milljónar króna í málskostnað. Ummælin sem um ræðir lét konan, hin 51 árs gamla Pálína Helga, falla í athugasemd á Facebook, sem var svar við ummælum manns sem sagði: „Áfram gakk Ingó minn.“ „[Þ]á í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ spurði Pálína Helga. Pálína var í fyrstu sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur á þeim grundvelli að ummælin rúmuðust innan tjáningarfrelsis hennar og hefðu ekki farið í bága við ærumeiðingaákvæði almennra hegningarlaga. Dómurinn mat ummælin hafa falið í sér gildisdóm frekar en að um staðhæfingu um staðreynd væri að ræða. Dómur Landsréttar hefur nú verið birtur en hann dæmdi Ingó í vil. Landsréttur mat svo að – þrátt fyrir að líta mætti svo á að ummælin hefðu verið hluti af mikilvægri samfélagsumræðu sem hefði staðið yfir á þessum tíma – væri ekki hægt að skilja þau á annan veg en að með þeim væri því haldið fram að Ingó hefði nauðgað ungum konum og beitt þær ofbeldi. Þau hefðu því falið í sér staðhæfingu en ekki gildidóm af hálfu Pálínu, og hún hefði ekki reynt að bera sönnur á þær staðhæfingar. „Þrátt fyrir að [Ingó] væri þjóðþekktur einstaklingur þyrfti hann ekki að þola að vera sakaður opinberlega um alvarlegt refsivert brot án þess að réttmætt tilefni væri til að setja fram slíkar staðhæfingar,“ segir í reifun dómsins. „Breytti engu þar um þótt ummælin hefðu fallið í umræðu um mikilvægt þjóðfélagsmálefni.“ Þá hafi engu skipt að orðin hafi borið merki um „ákveðna kaldhæðni“, eins og Pálína vildi meina. Því féllst Landsréttur á að í hinum umdeildu ummælum hefði falist aðdróttun í garð Ingós um alvarlega refsiverða háttsemi. Ingólfur hefur áður unnið meiðyrðamál af svipuðum toga þegar hann lagði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson í Landsrétti, eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur hafði sýknað Sindra Þór. Að mati Landsréttar mátti Sindri Þór ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ Ummæli Sindra Þórs voru dæmd dauð og ómerk. Sindri Þór var dæmdur til að greiða Ingólfi 900 þúsund krónur í miskabætur auk vaxta. Þá var hann dæmdur til að greiða Ingólfi málskostnað. Þá var þriðja meiðyrðamáli Ingólfs lokið með dómsátt og afsökunarbeiðni Silju Bjarkar Björnsdóttur.
Dómsmál Tjáningarfrelsi Mál Ingólfs Þórarinssonar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira