Innlent

At­hafna­maður sagður hand­tekinn í Leifs­stöð

Agnar Már Másson skrifar
Lögregla fylgir sakborningi fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur að kvöldi 22. september eftir að fjöldi manns hafði verið handtekinn um morguninn í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti.
Lögregla fylgir sakborningi fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur að kvöldi 22. september eftir að fjöldi manns hafði verið handtekinn um morguninn í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti. Vísir/Viktor Freyr

Lögreglan er sögð hafa handtekið athafnamann við komu til landsins í Leifsstöð í kvöld í tengslum við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem er til rannsóknar.

Ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn sé grunaður um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem fjallað hefur verið um en þar voru sautján manns í upphafi handteknir í aðgerðum lögreglu hinn 22. september, þar á meðal framkvæmdastjóri hjá BL. 

Öllum þeim sautján sem voru handteknir í upphafi hefur nú verið sleppt, að því er lögreglan sagði við Vísi á föstudag.

Lögregla hefur ekki veitt svör vegna handtökunnar í Leifsstöð sem Rúv greinir frá en miðillinn segir manninn hafa verið handtekinn er hann kom með flugi frá Lissabon í Portúgal í kvöld. Í upphafi hafi átt að handtaka manninn hinn 22. september en þá hafi komið í ljós að hann væri í Portúgal.

Vél frá Lissabon lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 20.10 í kvöld, að því er fram kemur á vef Isavia.



Greint var frá því á mbl.is á fimmtudag að einn hinna grunuðu, sem væri eigandi samlokustaðar, væri staddur erlendis og að lögregla hefði hvatt hann til að koma til Íslands vegna rannsóknarinnar.

Lögreglan hefur gert húsleit á nokkrum stöðum í tengslum við málið og segist hafa lagt hald á peninga, fíkniefni og fleiri muni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×