Rubio lentur á Íslandi Samúel Karl Ólason skrifar 5. október 2026 17:54 Marco Rubio heilsar Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur eftir lendingu. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur í Keflavík. Hann segist mættur hingað til að ræða sameinleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna, eins og öryggi á norðurslóðum, efnahagstengsl og varnarsamstarf.
Hingað er ráðherrann kominn til að funda með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, og heldur hann síðan til Grikklands og Frakklands á morgun. Áður en hann steig upp í Boeing C-32A flugvél flughers Bandaríkjanna sem notuð er til að flytja ráðherra og embættismenn var Rubio spurður út í ferðina og sagðist hann spenntur fyrir henni. Í tilkynningu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu hefur komið fram að Rubio muni ræða „efnahagsmál og öryggissamstarf“ á Íslandi. Þorgerður og Rubio munu funda á morgun og mun hann einnig hitta Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra. Á Facebooksíðu utanríkisráðuneytisins segir að tvíhliða samskipti Íslands og Bandaríkjanna verði til umræðu á fundunum. Einnig verði rætt við Rubio um samstarf í varnarmálum, öryggi á norðurslóðum og viðskipti milli ríkjanna. Þá muni alþjóðamál einnig bera á góma. Ráðherrann birti tíst eftir lendinguna þar sem hann segist mættur á klakann til að ræða sameiginleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna. Hann nefnir öryggi á norðurslóðum, sterkari efnahags- og orkumálatengsl og nánara varnarsamstarf. Arrived in Iceland to advance our shared priorities: a secure Arctic, stronger commercial and energy ties, and closer defense cooperation. https://t.co/bVS2JbaCdD— Secretary Marco Rubio (@SecRubio) October 5, 2026 Þegar blaðamaður sagði fyrr i dag „Nú ert þú á leið til Íslands, augljóslega í dag...“ greip Rubio frammí fyrir honum og sagði: „Er það!?! Enginn sagði mér það!“ SECRETARY RUBIO on ICELAND: They're a NATO member and have been a good friend of the United States. https://t.co/WAulucikRP— Department of State (@StateDept) October 5, 2026 Þessi hluti svars Rubio var klipptur úr myndbandi AP fréttaveitunnar sem birt var fyrr í dag. Þá sagðist hann aldrei hafa komið hingað til lands áður. Billy Long sendiherra, Þorgerður Katrín og Rubio. Þríeykið gengur frá flugvélinni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Utanríkismál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira