Innlent

Öflugur jarð­skjálfti í Bárðar­bungu

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Skjálftar sem þessir hafi mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015.
Skjálftar sem þessir hafi mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015. RAX

Jarðskjálfti 4,7 að stærð reið yfir í Bárðarbunguöskju klukkan 17:28 síðdegis í dag. Skjálftar af þessari stærð verða reglulega í Bárðarbunguöskjunni en engin merki eru um gosóróa.

Þetta segir í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar. Nokkrir eftirskjálftar hafi fylgt í kjölfarið en allir minni en tveir að stærð.

Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu þann 28. júlí síðastliðinn en hann var 5,2 að stærð.

Skjálftar sem þessir hafi mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015.

Í gær varð jarðskjálfti af stærð 3,8 norðvestan af Grímsey klukkan 13:13. Svipaðir skjálftar hafa mælst á svæðinu undanfarna daga og eru skjálftar þar algengir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×