Sport

Lentu í vand­ræðum þegar þeir spáðu Sindra þægi­lega uppi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Benedikt Guðmundsson og Hlynur Bæringsson hituðu upp fyrir tímabilið á Sýn Sport Ísland í gærkvöldi.
Benedikt Guðmundsson og Hlynur Bæringsson hituðu upp fyrir tímabilið á Sýn Sport Ísland í gærkvöldi.

Upphitunarþáttur Bónus-körfuboltakvölds var í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland í gærkvöldi.

Sérfræðingarnir Benedikt Guðmundsson og Hlynur Bæringsson mættu í þáttinn og fóru yfir liðin tólf. Að þessu sinni var eitt lið dregið upp úr skál í einu og upp úr því sköpuðust umræður um viðkomandi lið. Þeir félagar áttu í kjölfarið að setja liðið í sæti í deildinni og var bannað að breyta því þegar leið á þáttinn. Þetta átti eftir að koma þeim í vandræði þegar leið á þáttinn.

Þeir Benedikt og Hlynur spá Sindra, Hetti, ÍR og Ármanni neðstu fjórum sætunum. Hér að neðan má sjá umræðuna um hvert lið. Það sem vakti athygli er að þeir spá nýliðum Sindra 9. sætinu í deildinni og ef það rætist bjargar liðið sér þægilega frá falli.

Sindri hefur aldrei áður spilað í efstu deild.

Klippa: Upphitunarþáttur Körfuboltakvölds: Umræðan um Sindra

Höttur heldur sér uppi.

Klippa: Upphitunarþáttur Körfuboltakvölds: Umræðan um Hött

ÍR fellur.

Klippa: Upphitunarþáttur Körfuboltakvölds: Umræðan um ÍR

Ármann endar í neðsta sæti.

Klippa: Upphitunarþáttur Körfuboltakvölds: Umræðan um Ármann



Fleiri fréttir

Sjá meira


×