Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Kjartan Kjartansson og Telma Tómasson skrifa 7. október 2026 14:20 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir engan samningavilja að finna hjá atvinnurekendum. Vísir/Anton Brink Formaður VR segir stöðuna í viðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins grafalvarlega og útlit sé fyrir að þær séu leið inn í blindgötu. Framkvæmdastjóri SA segir stál í stál eins og sakir standa.
Innan við sólarhringur er nú þar til frestur til þess að segja upp kjarasamningum VR, LÍV og fagfélaganna annars vegar og SA hins vegar rennur út. Félögin hafa boðað að samningum verði sagt upp og að samkomulag sem breiðfylking stéttarfélaga gerði við atvinnurekendur í gærkvöldi breyti engu. Engar viðræður eiga sér nú stað á milli aðila og segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, stöðuna grafalvarlega. „Við skynjum engan samningsvilja hjá Samtökum atvinnulífsins og það lítur út fyrir það að þetta sé á leiðinni inn í einhvers konar blindgötu,“ segir hún. Á meðal þess sem liðkaði fyrir samkomulagi annarra stéttarfélaga við VR í gær var innlegg ríkisstjórnarinnar sem enn hefur ekki verið kynnt opinberlega. Halla segir útspilið mikilvægt. Afstaða félagsins hafi þó verið sú að samningarnir snerust ekki eingöngu um framlag ríkisins. „Ef hugmyndin er að hér leggist allir á árarnar þurfum við líka að finna það að þeir aðilar sem við sömdum við síðast og ætluðu að gera ákveðna hluti, að þeir ætli að leggjast á árarnar með okkur.“ Samninganefnd VR mætti lausnamiðuð og með hóflegar væntingar til viðræðna, að sögn Höllu. Hún hafi einnig komið með óskir um að staða stórra hópa í félaginu væri viðurkennd á einhvern hátt. „Það gerir forsætisráðherra með sínu útspili en við þurfum að fá þessa viðurkenningu með einhverju móti frá Samtökum atvinnulífsins,“ segir formaðurinn. Stjórnarfundur verður haldinn hjá VR síðdegis og segist Halla gera ráð fyrir að aðildarfélögin kalli sína hópa einnig saman. Geti ekki opnað á aukinn kostnað Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, segir samtökin reiðubúin að samþykkja sambærilega styttingu núgildandi kjarasamnings VR, LÍV og fagfélaganna líkt og samið var um við breiðfylkinguna í gær. Samtal um aðra útfærslu fyrir félögin eða forsendur fyrir styttingu hjá ríkissáttasemjara í dag hafi ekki skilað árangri. Því sé stál í stál eins og stendur. „Við sýnum stöðu viðsemjenda okkar skilning þótt við getum ekki höggvið á hnútinn,“ segir Bjarni. Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.Vísir/Lýður Valberg SA leggi áherslu á að núgildandi samningar haldi þrátt fyrir að þeir séu krefjandi fyrir atvinnulífið þar sem vextir séu háir og verðbólga hafi ekki hjanað í samræmi við vonir. „Við höfum verulegar áhyggjur af samkeppnishæfninni og sjáum að launahækkanir í gildandi samningi verða krefjandi fyrir fyrirtækin. Þess vegna getum við ekki opnað á samtal sem leiðir til aukins kostnaðar á samningstímanum. Það verður einfaldlega að skapa verðmætin áður en þeim er skipt.“ Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum framkvæmdastjóra SA.
Stéttarfélög Kjaramál Verðlag Efnahagsmál Atvinnurekendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaraviðræður 2023-25 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Sjá meira