Körfubolti

Voru gripnir í bólinu í fyrsta leik­hluta og unnu það ekki upp

Andri Broddason skrifar
Elvar Már Friðriksson og félagar í Neptunas byrjuðu leikinn í kvöld ekki vel. 
Elvar Már Friðriksson og félagar í Neptunas byrjuðu leikinn í kvöld ekki vel.  Vísir / Anton Brink

Elvar Már Friðriksson og félagar hans í litháenska liðinu Neptunas mættu þýska liðinu Chmenitz Niners í Evrópubikarnum í körfubolta. Lið Neptunas var sofandi í byrjun og náði ekki að vinna upp forskot mótherja sinna og þurftu að sætta sig við 93-84 tap

Niners byrjuðu leikinn betur og eftir fyrsta leikhluta var heimaliðið með 16 stiga forystu. Neptunas var nánast sofandi í byrjun því þrátt fyrir að Elvar Már hafi skorað körfu snemma í leiknum kom næsta stig liðsins ekki fyrr en um fimm mínútum síðar, þá úr víti.

Leikurinn var erfiður og mikið sem Neptunas þurfti að vinna upp en eftir sem leið á leikinn byrjaði liðið að spila betur og taka yfirhöndina í leiknum. Þrátt fyrir að vera orðið betra liðið á vellinum náðu Elvar og félagar ekki að jafna leikinn og þurftu að sætta sig við svekkjandi 93-84 tap.

Elvar Már spilaði vel í leiknum þar sem hann skoraði 15 stig og gaf 6 stoðsendingar sem er það sem Elvar Már gerir best. Liðsfélagi hans, Henri Drell, var stigahæsti leikmaðurinn í liðinu en hann skoraði 21 stig.

Neptunas heldur því áfram að vera stigalaust í C-riðli Evrópubikarsins og þarf liðið að bæta frammistöðu sína ef það ætlar að komast áfram upp úr riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×