Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Jakob Bjarnar skrifar 8. október 2026 10:43 James var að gefast upp á rekstrinum, hann hefur gaman af því að vinna en var farinn að upplifa sig sem þræl við að reka Borgarhjól samhliða. Hann fór í viðtal við Vísi og það viðtal las Flosi eins og svo margir aðrir. vísir/Stefán Jón/Arnar Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Örtækni, hefur fest kaup á reiðhjólaverkstæðinu Borgarhjól sem var við Hverfisgötu. James Fleatcher, fyrrverandi eigandi, fylgdi með í kaupunum. Reksturinn er kominn í Hátún.
Flosi las, eins og svo margir aðrir, viðtal Vísis við James Fleatcher, sem sagðist vera að gefast upp á rólunum; hann væri að hugsa um að leggja niður hjólaviðgerðarverkstæði sitt Borgarhjól. Þar með væri lokið sögu hjólreiðaviðgerða í miðborg Reykjavíkur. Slituppgefinn á rekstrinum James lýsti því fjálglega að hann væri slituppgefinn á rekstrinum og því að vinna 50 tíma á viku. Aldrei frí. James er 58 ára gamall og sagðist nú horfa í kringum sig eftir einhverju öðru starfi. Einhverju sem þýðir minni vinnu, að hann þurfi ekki að hafa áhyggjur af rekstrinum og geti bara tekið við launaseðlinum sínum. „Einkareksturinn er þungbær þegar maður þarf að vera potturinn og pannan í öllu sjálfur. Og það er ekkert að skána. Ég er á besta stað í bænum en borgaryfirvöld eru með skrítnar hugmyndir,“ sagði James í viðtali við Vísi. Hann sagðist hafa auglýst reksturinn en enginn hafi sýnt honum áhuga og staðan væri svört. Fjöldi manna lýsti yfir hryggð sinni; nú hefði hjólafólk í miðborginni ekki leitað neitt með bilaða hjólhesta sína. Flosi las viðtalið og sá í hendi sinni að þarna var tækifæri. Hann var einmitt maðurinn til að taka að sér það sem James var að gefast upp á, en James hafði lýst því yfir að hann hefði gaman að því að vinna. Flosi til bjargar „Já, ég las þetta viðtal og þótti það einkar athyglisvert.“ Til að gera langa sögu stutta lét Flosi ekki þar við sitja, hann hafði samband við James og samningar tókust. „Örtækni, þar sem ég er framkvæmdastjóri, var að bæta í reksturinn og keypti hjólaverkstæðið Borgarhjól – sem hefur starfað lengi við góðan orðstír á Hverfisgötunni. Við höfum nú flutt starfsemina til okkar í Hátún 10c þar sem við sinnum öllum almennum hjólaviðgerðum,“ segir Flosi. Hann sér fyrir sér uppgang í hjólabransanum því nú hafa rafhjólin bæst við og þar sér hann tækifæri. Flosi segir að samningar hafi gengið vel og hann getur glatt fólk með því að fyrrverandi eigandi fylgir með í kaupunum. „Nú er bara að koma til okkar í Hátúnið með biluð hjólin. Engar tímapantanir og ekkert vesen.“
Hjólreiðar Verslun Samgöngumál Reykjavík Neytendur Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira