Innlent

Vilja auka við­veru NATO í norðri

Agnar Már Másson skrifar
Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands.
Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands. Utanríkisráðuneytið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Anitu Anad, utanríkisráðherra Kanada. Ráðherrarnir vilja uppfæra fríverslunarsamning landanna og koma á fót tengslaneti fyrir jarðhita til að greina tækifæri til samstarfs. Þá vilja þær styrkja viðveru NATO á norðurslóðum.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum.

Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og kynnir sér að því loknu aðstæður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli áður en hún heldur af landi brott.

Þorgerður og Anand gáfu í dag út sameiginlega yfirlýsingu á ensku.

Þar kemur fram að Ísland og Kanada, sem norðurskautsríki, hafi ríka hagsmuni af því að tryggja öryggi og stöðugleika á norðurslóðum.

„Í því samhengi lögðu ráðherrarnir áherslu á stuðning sinn við aukna viðveru NATO [Atlantshafsbandalagsins] á norðurslóðum og á Norður-Atlantshafi,“ segir í yfirlýsingu þeirra. Ráðherrarnir hafi sömuleiðis fagnað eflingu samstarfs Íslands og Kanada í öryggis- og varnarmálum í samræmi við uppfærða viljayfirlýsingu sem undirrituð var fyrr á þessu ári.

Samkvæmt yfirlýsingu stjórnarráðsins ræddu ráðherrarnir einnig stuðning við Úkraínumenn, sem hafa varist innrás Rússa í rúmlega fjögur ár, og stöðu mála í Mið-Austurlöndum.

Þá vilji ríkin enn fremur uppfæra fríverslunarsamning sín á milli.

Enn fremur samþykktu ráðherrarnir að koma á fót jarðhitaneti Kanada og Íslands undir forystu sendiráðanna, sem á að leiða saman einkageirann, samstarfsaðila úr röðum frumbyggja og viðeigandi hagaðila innan stjórnsýslunnar til að greina tækifæri til samstarfs, meðal annars í norðlægum og afskekktum samfélögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×