Borað eftir heitu vatni í Laugardal Lovísa Arnardóttir skrifar 9. október 2026 09:23 Bora á í Bolholti og í Engjateig. Vísir/Einar Í dag hefst flutningur á hundrað tonna bor frá Hellisheiði í Laugardalinn, en þar ætla Veitur að bora í leit sinni að heitu vatni. Í tilkynningu segir að Veitur hafi undanfarið undirbúið borun eftir heitu vatni á tveimur stöðum, við Engjateig og Bolholt.
Samkvæmt tilkynningu hefst borun við Engjateig í næstu viku og stendur fram á vor 2027. Borun í Bolholti hefst nokkru síðar og stendur yfir mun skemur. Þá kemur einnig fram að þegar borholan verður prófuð verði gufa sýnileg á framkvæmdasvæðinu. Það sé eðlilegur hluti borunar og verði látið vita af því fyrir fram. Markmiðið er að auka afhendingaröryggi heita vatnsins og mæta þörfum vaxandi samfélags til framtíðar. Laugardalur eigi sérstakan sess í sögu hitaveitunnar í Reykjavík og jarðhiti á svæðinu hafi yljað Reykvíkingum í nær heila öld. Níu borholur eru nú þegar í notkun á svæðinu samkvæmt tilkynningu Veitna. Kort sem sýnir hvar á að bora. Veitur „Það er auðvelt að gleyma því í dagsins önn að undir götunum, húsunum og görðunum okkar er jarðhitaauðlind sem gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi borgarbúa. Með þessari borun erum við bæði að tryggja þjónustu til framtíðar og halda áfram langri sögu ábyrgrar nýtingar jarðhitans í Reykjavík,“ segir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum, í tilkynningu. Í tilkynningu segir að borun í þéttu borgarumhverfi krefjist vandaðs undirbúnings og framkvæmdasvæðin verði afmörkuð. Veitur munu upplýsa íbúa, rekstraraðila og vegfarendur reglulega meðan á vinnu stendur. „Jarðhitinn á þessu svæði er vel þekktur, en hver ný hola gefur okkur mikilvægar upplýsingar um auðlindina. Við erum í raun að horfa niður í jarðhitakerfi sem er ósýnilegt frá yfirborði og leita að leiðum til að nýta það með ábyrgum og sjálfbærum hætti,“ segir Þráinn Friðriksson, auðlindaleiðtogi hitaveitu hjá Orkuveitunni. Samskonar bor verður fluttur í Bolholt og á Engjateig. Veitur Nánari upplýsingar, kort af framkvæmdasvæðum og uppfærslur á framvindu má finna á upplýsingasíðu Veitna: Borað eftir heitu vatni í Laugardal. Umfangsmesta leitin í fimmtíu ár Samkvæmt vef Veitna hófu þau á árinu umfangsmikla leit að heitu vatni. Í þessu leitarátaki er stefnt á að bora 29 holur á komandi árum, þar af 15 holur í ár. Eitt af markmiðum Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið og því verður borað með rafmagni þar sem því verður komið við, annars verður notast við lífdísel (VLO) sem dregur úr losun um allt að 90% miðað við notkun díselolíu. Fyrr á árinu var fjallað um aðgerðir þeirra í Skammadal í Mosfellsbæ. Þar höfðu íbúar áhyggjur af borun á fuglalíf.
Vatn Reykjavík Umhverfismál Skipulagsmál Tengdar fréttir Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Athuganir óháðra sérfræðinga í Varmá eru að engar vísbendingar hafi komið fram um fiskdauða eða annað umfangsmikið tjón á lífríki árinnar. Þá er jafnframt ekkert sem bendir til fækkunar fugla. Veitur stöðvuðu við lok síðasta mánaðar borframkvæmdir í Skammadal. Árfarvegurinn í Varmá var orðinn gruggugur og íbúar höfðu miklar áhyggjur af dýralífi. Óháðir sérfræðingar hafa tekið út áhrifin síðustu vikur. Ræða á aðgerðir Veitna og leitina á íbúafundi á morgun. 21. júní 2026 18:03 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira
Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Athuganir óháðra sérfræðinga í Varmá eru að engar vísbendingar hafi komið fram um fiskdauða eða annað umfangsmikið tjón á lífríki árinnar. Þá er jafnframt ekkert sem bendir til fækkunar fugla. Veitur stöðvuðu við lok síðasta mánaðar borframkvæmdir í Skammadal. Árfarvegurinn í Varmá var orðinn gruggugur og íbúar höfðu miklar áhyggjur af dýralífi. Óháðir sérfræðingar hafa tekið út áhrifin síðustu vikur. Ræða á aðgerðir Veitna og leitina á íbúafundi á morgun. 21. júní 2026 18:03