Sport

Dag­skráin í dag: Risa leikir strax eftir lands­leikja­hlé

Aron Guðmundsson skrifar
Óskar Hrafn fer með sína menn í KR í heimsókn til Fram
Óskar Hrafn fer með sína menn í KR í heimsókn til Fram Vísir/Hulda Margrét

Framundan er þétt dagskrá á sportrásum Sýnar í dag. Enski boltinn byrjar aftur að rúlla eftir landsleikjahlé sem og Besta deildin.

Við byrjum snemma á Sýn Sport Viaplay í dag því rétt fyrir klukkan níu hefst bein útsending frá sprettkeppni í Singapúr í Formúlu 1 mótaröðinni.

Fljótlega eftir hana fer enski boltinn að rúlla á ný eftir landsleikjahlé. Englandsmeistarar Arsenal taka á móti Leeds United í beinni útsendingu á Sýn Sport klukkan hálf tólf. 

Á sama tíma á Sýn Sport Ísland 4 hefst síðan bein útsending frá Open de Espana mótinu í golfi sem er hluti af Evrópumótaröðinni. 

Klukkan eitt á Sýn Sport Viaplay mun síðan hefjast bein útsending frá tímatöku fyrir Singapúr kappaksturinn í Formúlu 1. 

Klukkan tuttugu mínútur fyrir tvö hefst síðan Doc Zone á Sýn Sport þar sem fylgst verður með öllu því helsta í bæði enska boltanum og Bestu deildinni. 

Fjölmargir leikir hefjast klukkan tvö bæði á Englandi og hér heima:

England:

  • Chelsea - Bournemouth (Sýn Sport 2)
  • Aston Villa - Brentford (Sýn Sport 3) 
  • Ipswich Fulham (Sýn Sport 4)
  • Sunderland - Brighton (Sýn Sport 5) 

Ísland:

  • Stjarnan - KA (Sýn Sport Ísland) 
  • Valur - FH (Sýn Sport Ísland 2)
  • Þór Ak.- ÍBV (Sýn Sport Ísland 3) 

Klukkan hálf fimm hefst síðan stærsti leikur dagsins í enska boltanum þar sem að Manchester United tekur á móti Tottenham. Tvö lið sem hafa verið í brasi í beinni á Sýn Sport.

Á sama tíma tekur RB Leipzig á móti Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í beinni á Sýn SPort Viaplay og klukkan hálf sjö á sömu rás tekur Nurnberg á móti Wolfsburg.

Dagskránni lýkur svo með risaslag Fram og KR í efri hluta Bestu deildarinnar en liðin berjast um annað sæti deildarinnar. Leikur liðanna er sýndur í beinni á Sýn Sport Ísland 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×