Fyrst var hin afdrifaríka tenging bótagreiðslna við launavísitöluna lögfest af stjórnarmeirihlutanum og nú hefur Ragnar Þór Ingólfsson, félagsmálaráðherra og sjóðsstjóri Neyðarsjóðs Ragnars Þórs Ingólfssonar, lagt fram frumvarp sitt um svokallaða leigubremsu.
Litlu er við að bæta lýsingu Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra á frumvarpinu en hann sagði það beinlínis heimskulegt á kynningarfundi peningastefnunefndar í vikunni.
Annars vakti það athygli sumra millistjórnenda og annarra að frumvarpið var ekki lagt í samráðsgátt stjórnvalda. Það er skýrt í greinargerð frumvarpsins en þar kemur fram að samráðsferli hefði gefið leigusölum svigrúm til þess að hækka leigu. Með öðrum orðum gera höfundar sér grein fyrir því að lögfesting þess leiði til þess að framboð á leiguhúsnæði minnki á endanum og leiguverð hækki, rétt eins og þeir sem hafa gagnrýnt þessi áform hafa bent á.
Það má velta fyrir sér af hverju þeir sem eru svo trúaðir á að leigubremsan svokallaða leiði til lægri verðbólgu leggi ekki til sambærileg úrræði á mörkuðum með aðrar vörur og þjónustu. Fyrst á að bremsa af verð á leiguhúsnæði, því ekki að gera slíkt hið sama með verð á brauði, súkkulaði eða timbri?
Munu bremsuför Ragnars Þórs verða sjáanleg á fleiri vörumörkuðum þegar fram í sækir?
Kona hættir við að fara í verkfall
Eftir að hafa gert hverja kröfuna á hendur Samtökum atvinnulífsins á fætur annarri á undanförnum vikum stóð Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, frammi fyrir orðnum hlut þegar hún að lokum samþykkti samskonar samkomulag við atvinnurekendur og önnur stéttarfélög höfðu gert. Félagsmönnum hennar stóð enda ekkert annað til boða en það sem Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson, sem leiða breiðfylkingu verkafólks, höfðu gengið að með glöðu geði.
Þau höfðu látið hafa eftir sér að það væri einkennilegt hagsmunamat miðað við núverandi kringumstæður í hratt kólnandi efnahagslífi að gefa eftir launahækkanir upp á tugi þúsunda á næsta ári. Sú raunveruleiktenging virtist hins vegar ekki eiga við um Höllu.
Millistjórnendur hafa heyrt að kröfur VR hafi verið fjölbreyttar og nánast hverju sem er kastað fram til að réttlæta leikþáttinn. Halla var þannig reiðubúin til að segja upp kjarasamningum ef aðfangadagur yrði ekki gerður að fullum frídegi og vildi efna til almenns launaskriðs meðal félagsmanna.
Það kom því ekki á óvart að þetta brölt setti árshátíðarferð Samtaka atvinnulífsins í uppnám. Ferðinni var heitið til króatísku eyjunnar Hvar sem reynsluboltarnir hjá samtökunum kalla einatt Ibiza Adríahafsins.
En það eru fleiri vistmenn í Húsi atvinnulífsins á ferð og flugi þessa dagana. Þannig gerðu starfsmenn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu sér ferð til Mílanó á Ítalíu. Heimildir herma að tilgangur ferðarinnar sé meðal annars að hafa uppi á Gunnari Jakobssyni, fyrrverandi varaseðlabankastjóra, og kanna hvort hann starfi nú hjá þekktu tískuhúsi, eins og Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður hefur margoft haldið fram, eða hvort hann vinni í raun og veru hjá einum af stórbönkum borgarinnar.
Húsleitin hjá Beru og kunnuglegt samstarf
Talandi um árshátíðir og tímasetningar. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, veit að það er fátt sem hristir hópnum betur saman en góð og gamaldags húsleit. Tímasetning aðgerða eftirlitsins snemma að föstudagsmorgni í höfuðstöðvum móðurfélags Ölgerðarinnar vegna meintrar misnotkunar á markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins, sem stundum hefur verið skrafað um, var mögulega ekki einskær tilviljun.
Yfir aðgerðinni virðist raunar hafa verið nokkur viðhafnarbragur. Ríkisútvarpið greindi frá því samdægurs að fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefði um nokkurra mánaða skeið rannsakað ætluð brot Beru gegn samkeppnislögum og hygðist fjalla um málið næstkomandi þriðjudag.
Fyrirkomulagið er um margt kunnuglegt og rifjar óneitanlega upp samstarf Ríkisútvarpsins og gjaldeyriseftirlits Seðlabankans í aðdraganda húsleitarinnar hjá Samherja árið 2012. Síðar kom í ljós að fréttamaður RÚV hafði verið í samskiptum við framkvæmdastjóra eftirlitsins vikum saman og sent honum drög að frétt um húsleitina til yfirlestrar daginn áður en hún fór fram. Fréttamenn RÚV voru síðan mættir á vettvang áður en aðgerðin hófst.
Í gærkvöldi, föstudag, var góðu dagsverki starfsmanna Samkeppniseftirlitsins fagnað á árshátíð eftirlitsins sem haldin var með glæsibrag og engu til sparað. Hvort fréttamenn Kveiks hafi verið á gestalistanum fylgir ekki með sögunni.
Almannatengill leitar að forstjóra Landsvirkjunar
Með brotthvarfi Harðar Arnarsonar úr Landsvirkjun hefur hinn vinsæli samkvæmisleikur farið af stað hver verði eftirmaður hans í stóli forstjóra orkufyrirtækisins. Andrés Jónsson almannatengill var snöggur til að veita stjórninni hugmyndir að skipan næsta forstjóra en hann hefur þrengt valið við Tinnu Traustadóttur, Birnu Ósk Einarsdóttur, Stefaníu Guðrúnu Halldórsdóttur, Rögnu Árnadóttur, Ástu Fjeldsted og Tómas Má Sigurðsson.
Millistjórnendur vita hvernig kaupin gerast oft á eyrinni og velta því fyrir sér hvaða Samfylkingar- og Viðreisnarfólk vanti helst vinnu um þessar mundir. Í því samhengi má velta fyrir sér af hverju nafn Runólfs Ágústssonar hefur ekki borið á góma, en eigið fé Landsvirkjunar er eitt af því fáa hér á landi sem jafnast á við metnað og hugmyndir hans. Hver væri ekki til í að slást í för í þá sjálfbærnivegferð sem ráðning Runólfs sannarlega yrði.
Ábyrgara fólk horfir hins vegar í aðrar áttir og þar heyrast einnig nöfn á borð við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, og Gunnar Guðna Tómasson, framkvæmdastjóra vatnsafls hjá Landsvirkjun.
Átökin við nýju stjórnina
Millistjórnandanum þykir missir af Herði Arnarsyni úr stóli forstjóra Landsvirkjunar, en hann hefur verið einstaklega farsæll í starfi á þeim sautján árum sem hann hefur setið við stjórnvölinn. Hörður var ekki alltaf óumdeildur og viðskiptavinum Landsvirkjunar þótti hann harður í horn að taka í samningaviðræðum – enda geta hagsmunirnir sem þar eru undir hlaupið á tugum milljarða. Pólitíkin reyndist Herði oft mótdræg og umhverfið hér innanlands krefjandi þar sem tekist hefur verið á um flest það sem snýr að skynsamlegri orkuöflun og nýtingu auðlinda landsins til að bæta lífskjör þjóðarinnar.
Á forstjóratíma Harðar hafa orðið stakkaskipti í rekstri og efnahag Landsvirkjunar, sem er í dag langsamlega verðmætasta fyrirtæki landsins. Endurnýjun raforkusamninga við stærstu viðskiptavinina, ásamt hagstæðu ytra umhverfi að undanförnu, hefur skilað Landsvirkjun miklum ávinningi – og eftir fjárfestingar fyrri ára er félagið í stöðu til að greiða verulegar reglulegar arðgreiðslur til fjárþurfa ríkissjóðs. Fyrirtækið er orðið afar skuldlétt í öllum alþjóðlegum samanburði og nú síðast í sumar var klárað að greiða upp allar skuldir Landsvirkjunar með ríkisábyrgð. Landsvirkjun stendur því fjárhagslega sterkari en nokkru sinni fyrr.
Þrátt fyrir góðan rekstrarárangur hefur samt ekki verið friður á öðrum vígstöðvum að undanförnu.
Eftir innkomu nýrrar stjórnar vorið 2025, þegar öllum fimm stjórnarmönnum Landsvirkjunar var skipt út í einu vetfangi, hefur verið ágreiningur um stjórnarhætti milli stjórnarinnar og Harðar, meðal annars þegar kemur að erfiðum óleystum samkeppnismálum sem vofa enn yfir fyrirtækinu. Aðeins rúmt ár er liðið frá því að Samkeppniseftirlitið sektaði Landsvirkjun um 1,4 milljarða króna vegna þess sem eftirlitið kallaði „alvarleg brot“ á samkeppnislögum. Landsvirkjun ákvað að una ekki niðurstöðunni og kærði hana til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Samhliða hefur fyrirtækið verið til rannsóknar hjá Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, vegna meintrar samkeppnishamlandi háttsemi.
Millistjórnandinn hefur heyrt að nýja stjórnin, undir forystu Brynju Baldursdóttur, og Hörður hafa ekki verið samstíga um hvernig best væri að eiga við þessi mál. Innan stjórnarinnar er sagðir hafa verið vilji til að leita sátta við samkeppnisyfirvöld fremur en að halda áfram harðvítugum lagadeilum. Þar hafa jafnframt verið áhyggjur af því að stórir viðskiptavinir Landsvirkjunar kunni að láta reyna rétt sinn vegna meintra brota fyrirtækisins, meðal annars fyrir gerðardómi, með tilheyrandi fjárhagslegri og lagalegri óvissu.
Sérstaka arðgreiðslan sem kom aldrei
Og fleiri kenningum hefur verið haldið á lofti um skyndileg brotthvarf Harðar. Bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra, gæslumaður eignarhluts skattgreiðenda í Landsvirkjun, hafa tekið fyrir það að ágreiningur Harðar við stjórnina hafi verið vegna arðgreiðslna fyrirtækisins.
Á aðalfundi Landsvirkjunar í apríl samþykkti stjórnin nýja arðgreiðslustefnu fyrir fyrirtækið. Minna hefur hins vegar farið fyrir því að rifjað sé upp að ekkert varð af þeirri sérstöku arðgreiðslu sem hafði áður verið sögð til skoðunar þegar ársuppgjörið var kynnt í febrúar á þessu ári. Niðurstaðan varð að lokum 165 milljóna dala arðgreiðsla vegna afkomu síðasta árs, jafnvirði ríflega 20 milljarða króna, sem var talsvert undir þeim 32,6 milljörðum sem fjármálaráðherra hafði gert ráð fyrir í fjárlögum ársins 2026.
Millistjórnandanum þykir ekki ósennilegt að Hörður hafi eðlilega sett sig upp á móti þeim hugmyndum eigandans um að taka út arð út fyrirtækinu sem jafngilti öllu handbæru fé frá rekstri síðasta árs. Þetta á sérstaklega við núna þegar Landsvirkjun stendur frammi fyrir einni umfangsmestu fjárfestingarlotu í sögu fyrirtækisins á komandi árum.
Millistjórnandinn er nýr vikulegur pistill á Innherja. Millstjórnandinn hefur um áratuga skeið starfað í íslensku atvinnulífi fæstum til gagns og flestum til ama. Hann eygir þó enn von til þess að fá starf hjá hinu opinbera.