Enski boltinn

Fúll heim af gamla heima­vellinum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jörgen Strand Larsen fagnar Jeremy Pino eftir mark þess síðarnefnda.
Jörgen Strand Larsen fagnar Jeremy Pino eftir mark þess síðarnefnda. Getty

Oliver Glasner átti ekki glæsta heimkomu á Selhurst Park er hans menn í Nottingham Forest töpuðu fyrir Crystal Palace. Hull og Everton skildu jöfn.

Forest var töluvert sterkari aðilinn í byrjun leiks á Selhurst Park í dag og komst yfir eftir aðeins þriggja mínútna leik með marki Dan Ndoye. Liðið fékk tækifæri til að bæta við þar sem Daniel Munoz klúðraði dauðafæri og Morgan Gibbs-White átti skot í slá.

Forest-liðum refsaðist fyrir að nýta ekki færin og undir lok fyrri hálfleiks skoruðu Daichi Kamada og Jefferson Lerma sitthvort markið til að koma Palace 2-1 yfir.

Jeremy Pino skoraði þriðja markið eftir korter af síðari hálfleik og leik lauk 3-1. Oliver Glasner, þjálfari Forest, fór því fúll heim af gamla heimavellinum.

Í Hull mættust Hull City og Everton. Markalaust var í hálfleik en Joe Gelhardt kom Hull yfir eftir aðeins fimm mínútur af síðari hálfleiknum. Fimm mínútum eftir það jafnaði Kieran Dewsbury-Hall fyrir Everton.

Thierno Barry heldur áfram að gera það gott í framlínu Everton og kom liðinu yfir á 68. mínútu en varamaðurinn Mohamed Belloumi jafnaði fyrir Hull sex mínútum síðar.

Þar við sat og liðin skildu jöfn 2-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×