Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. október 2026 17:13 Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta segir flugvelli í Medína og Jeddah ekki hafa orðið fyrir árásum. Vísir/Ívar Fannar Air Atlanta hefur dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði að sögn framkvæmdastjóra vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu.
Hútar hafa um árabil barist gegn Sádí-Arabíu í borgarastyrjöld í nágrannaríkinu Jemen en undanfarna daga hafa þeir fært sig upp á skaftið með röð eldflaugarása sem beinst hafa gegn flugvöllum í Sádí-Arabíu. Á laugardag létust þrettán manns í eldflaugarás þeirra á alþjóðaflugvöllinn í Ríad höfuðborg Sádí-Arabíu auk þess sem um þrjú hundruð manns særðust. Hútar hafa hótað því að allir flugvellir Sádí-Arabíu verði fyrir árásum utan flugvalla í helgustu borgum Íslams, Mekka og Medína. Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta sem um árabil hefur verið með starfsemi í landinu segir félagið fylgjast grannt með stöðunni. „Við erum að vinna ítarlegt áhættumat vegna stöðunnar. Við erum að reka farþegaflug í dag frá tveimur flugvöllum í Sádí-Arabíu, Medína og Jeddah. En við erum ekki með neinn rekstur í Ríad þar sem að árásirnar hafa orðið og við höfum ekki verið þar með rekstur síðastliðinn mánuð eða svo þegar við fjarlægðum allar síðustu, þegar við tókum út síðustu fraktflugvélarnar okkar sem að voru á samningi þar. Þannig að það er ekkert fólk frá okkur í Ríad og hefur ekki verið í dágóðan tíma.“ Air Atlanta hafi minnkað umsvif sín mikið, hafi í upphafi árs verið með átta flugvélar í rekstri í Sádí-Arabíu en með fjórar vélar núna. Baldvin segir áhrifin hingað til aðallega hafa falist í töfum á flugáætlun. „Við erum með aukið eldsneyti um borð ef vélar þurfa að fara í biðflug. Við erum með varavelli sem eru þá fyrir utan Sádi-Arabíu, flugsvæðum hefur til að mynda yfir ákveðnum svæðum yfir Sádi-Arabíu verið lokað fyrir allri starfsemi, til að mynda svæði sunnan við Sádi-Arabíu, þannig við erum látin þrengja umtalsvert hvaða flugleiðir við fljúgum og yfir hvaða svæði.“ Baldvin bendir á að félagið fljúgi frá borgum Sádí-Arabíu sem hingað til hafi alveg sloppið við átökin. Og það er vegna trúarlegs mikilvægis. Allir pílagrímar til Mekka, þeir fara í gegnum Jeddah-flugvöllinn og eins er Medína, svona önnur helgasta borg Sádi-Arabíu, þannig að þessar tvær borgir eru þær helgustu í íslamstrú og hafa algjörlega verið látnar í friði.“ Í mars síðastliðnum var félagið með um sexhundruð manns starfandi í landinu. Baldvin segir að starfsfólkið sé í dag í kringum 250 talsins. Þessi minni umsvif hljóta að hafa talsverð fjárhagsleg áhrif á reksturinn hjá ykkur? „Þetta hefur sannarlega áhrif. Við höfum þurft að flytja vélar yfir á aðra samninga og það hefur bara gengið vel. Við búum að því að eiga einstaka starfsmenn sem hafa verið duglegir og góðir í því að aðlaga sig að breyttum aðstæðum, þannig við erum að fljúga meira út úr Evrópu og til Bandaríkjanna og Afríku heldur en akkúrat út úr konungdæminu á fraktvélunum okkar.“ Þá hafi eldsneytisverð hækkað um rúmlega hundrað prósent frá því á sama tíma fyrir ári síðan. Baldvin segir það hafa augljós áhrif á rekstrarkostnað. „En heilt yfirbragð gengur reksturinn hjá okkur vel. Þetta er sveiflukenndur bransi, það er alveg óhætt að segja það. En við búum að því, eins og ég sagði áðan, að eiga einstakan hóp og við aðlögum okkur eins og við getum,“ segir Baldvin. Öryggi starfsfólksins sé það sem öllu máli skipti. „Það er það sem skiptir öllu máli. Við förum að öllu með gát. Við höfum minnkað umsvifin verulega og þrengt talsvert hvert við fljúgum og hvaðan. Þannig við erum ekki að fara að taka neinar óþarfa áhættur. Það verður aldrei. Aðrar vélar eru komnar á aðra samninga og svo verðum við bara að fylgjast grannt með hvernig framhaldið verður.“
Flug Sádi-Arabía Jemen Air Atlanta Íslendingar erlendis Tengdar fréttir „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins. 11. mars 2026 21:12 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Sjá meira
„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins. 11. mars 2026 21:12