Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Íþróttadeild Vísis skrifar 13. október 2026 19:47 Sveindís Jane Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir stigu sigurdans í lokin. vísir/Anton Ísland tryggði sér í kvöld örugglega sæti í úrslitaeinvígi umspils um sæti á Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Brasilíu á næsta ári. Ísland vann 5-0 sigur á Króatíu á Laugardalsvelli og mætir að öllum líkindum Portúgal í einvígi um sæti á HM.
Stelpurnar okkar höfðu mikla yfirburði á Laugardalsvelli í kvöld og sóttu nánast linnulaust að marki Króatíu allan leikinn. Eftir mörk frá Hlín Eiríksdóttur og Ídu Marín Hermannsdóttur í fyrri hálfleik var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda og Katla Tryggvadóttir bætti þriðja markinu við í síðari hálfleik áður en varamaðurinn Diljá Ýr Zomers skoraði tvö mörk undir lokin. Hér fyrir neðan má sjá einkunnir stelpnanna okkar í leiknum í kvöld. Einkunnir Íslands Fanney Inga Birkisdóttir, markvörður (6) Hafði afskaplega lítið að gera í markinu. Þurfti aldrei að verja skot, var áhorfandi lengst af en greip vel inn í þau fáu skipti sem þess var krafist. Arna Eiríksdóttir, hægri bakvörður (6) Reyndi lítið á hana en stóð fyrir sínu. Var ekki mikið með í sóknarleiknum á hægri kantinum en lenti ekki í neinum vandræðum í varnarleiknum, frekar en aðrir leikmenn íslenska liðsins. Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður (fyrirliði) (7) Það reyndi ekki mikið á fyrirliðann okkar í miðri vörninni í 150. landsleiknum fyrir Íslands hönd. Hún var dugleg að stýra sínum leikmönnum og ógnandi í föstum leikatriðum eins og vanalega. Diljá Ýr Zomers kom inn á sem varamaður og skoraði tvö mörk.vísir/Anton Guðrún Arnardóttir, miðvörður (6) Þurftu sjaldan eða aldrei að taka á honum stóra sínum en það segir okkur einfaldlega hversu mikla yfirburði varnarmenn okkar höfðu gegn króatísku sóknarmönnunum. Hafrún Rakel Halldórsdóttir, vinstri bakvörður (7) Var örugg í sínum aðgerðum og tók í nokkur skipti þátt í sóknarleiknum. Átti frábæran klobba í seinni hálfleiknum þegar hún fór illa með einn króatíska varnarmanninn. Örugg í sínum aðgerðum í dag. Sveindís Jane Jónsdóttir, hægri vængmaður (8) Komst oft í góðar stöður hægra megin og hefði stundum mátt nýta þær betur. Lagði upp fyrir Ídu Marín og svo aftur fyrir Kötlu á afar smekklegan hátt. Góð frammistaða heilt yfir og sífelld ógn af Sveindísi á hægri kantinum. Alexandra Jóhannsdóttir, miðjumaður (6) Myndaði þríeyki á miðjunni ásamt Karólínu Leu og Kötlu. Var tengiliður við vörnina, hljóp mikið og gaf króatísku leikmönnunum ekki færi á að byggja upp eitt né neitt. Katla Tryggvadóttir skoraði frábært mark.Vísir/Anton Brink Katla Tryggvadóttir, miðjumaður (7) Hún nýtti tækifærið sem hún fékk vel. Var mikið í boltanum, barðist eins og ljón og gaf ekki tommu eftir á miðjunni. Hún skoraði sitt fyrsta landsliðsmark með góðu skoti úr teignum. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, miðjumaður (6) Oft hefur farið meira fyrir Karólínu Leu en í kvöld. Hljóp mikið og átti gott skot í fyrri hálfleiknum sem fór rétt fram hjá markinu. Skilaði því sem ætlast var til af henni. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir mundar skotfótinn.vísir/Anton Hlín Eiríksdóttir, vinstri vængmaður (7) Var hættuleg á vinstri kantinum og augljóslega full sjálfstrausts. Fékk gott skallafæri snemma en braut síðan ísinn fyrir Ísland með góðu marki. Ída Marín Hermannsdóttir, sóknarmaður (8) Fékk tækifærið í byrjunarliðinu og lét heldur betur til sín taka. Hún klikkaði á dauðafæri í upphafi leiks en áður en fyrri hálfleikur var á enda hafði hún bæði lagt upp mark fyrir Hlín og skorað sitt fyrsta landsliðsmark. Hún var dugleg að fá boltann í fætur og koma sér í réttar stöður. Varamenn Birta Georgsdóttir kom inn á fyrir Ídu Marín Hermannsdóttur á 64. mínútu (7). Átti þátt í marki Diljár með fínum spretti upp hægri kantinn. Kom boltanum síðan á Líf sem átti stoðsendinguna á Diljá. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir kom inn á fyrir Kötlu Tryggvadóttur á 64. mínútu (6). Var áræðin í þau skipti sem hún fékk boltann og dugleg að setja pressu á króatísku varnarmennina. Diljá Ýr Zomers kom inn á fyrir Hlín Eiríksdóttur á 74. mínútu (8). Skoraði tvö mörk seint í leiknum og gerði það sem varamenn eiga að gera, setti mark sitt á leikinn og það af krafti. Líf Joostdóttir Van Bemmel lék sinn fyrsta A-landsleik í kvöld.vísir/Anton Emilía Óskarsdóttir kom inn á fyrir Sveindísi Jane Jónsdóttur á 80. mínútu. Spilaði ekki nóg til að fá einkunn. Líf Joostdóttir Van Bemmel kom inn fyrir Örnu Eiríksdóttur á 80. mínútu. Lagði upp mark Diljár með fínni sendingu úr teignum.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Sjá meira