Lífið

Berg­lind Alda og Auddi keppa í Taskma­ster

Boði Logason skrifar
Berglind Alda og Auddi eru í hópi keppenda. Þekkir þú baksvipinn á hinum þremur? Þeir verða kynntir til leiks á Vísi á næstu dögum.
Berglind Alda og Auddi eru í hópi keppenda. Þekkir þú baksvipinn á hinum þremur? Þeir verða kynntir til leiks á Vísi á næstu dögum. Sýn

Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, og Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingamaður, verða í hópi keppenda í Taskmaster Ísland sem verður á dagskrá Sýnar+ næsta vor.

Tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði, en Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu þar snúa aftur sem stjórnendur þáttanna. Að vanda verða keppendur fimm talsins og verða hinir þrír kynntir til leiks hér á Vísi á næstu dögum.

Berglind Alda er þekkt fyrir að stýra Krakkakviss og fyrir hlutverk sín í kvikmyndinni Ljósbrot og sjónvarpsþáttunum Húsó og Venjulegu fólki. Hún hlaut Grímuverðlaun árið 2026 sem leikkona ársins í aukahlutverki fyrir túlkun sína á Ófelíu í Hamlet í Borgarleikhúsinu og þessa dagana má sjá hana í sýningunni Svikasögum í sama leikhúsi.

Auðunn, sem jafnan er kallaður Auddi, varð þjóðþekktur í 70 mínútum og Strákunum. Hann hefur leikið í Svínasúpunni, Steypustöðinni og kvikmyndinni Leynilöggu og hlaut, ásamt samstarfsfólki sínu, Edduverðlaun árið 2022 fyrir þáttaröðina Tónlistarmennirnir okkar. Þá er hann liðsmaður og prímusmótor FM95BLÖ.

Í Taskmaster Ísland mæta fimm íslenskir skemmtikraftar og grínistar til leiks og keppa í óvæntum og oft furðulegum þrautum sem krefjast útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og húmors. Allt er þetta gert í nafni heiðurs og hláturs en einnig til að finna út hver verður hinn eini sanni þrautakóngur þáttaraðarinnar.

Hægt er að horfa á fyrstu þáttaröðina á streymisveitunni Sýn+ og í opinni dagskrá á Sýn.


Tengdar fréttir

Taskmaster Ísland snýr aftur

Taskmaster Ísland mun snúa aftur á Sýn+ næsta vor en tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði. Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu snúa aftur sem stjórnendur þáttanna en keppendur verða kynntir til leiks hér á Vísi á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.