„Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Birgir Olgeirsson skrifar 16. október 2026 16:06 Víðistaðaskóli í Hafnarfirði. Skólastjórar bæjarins óska eftir fjármagni til að takmarka aðgang að skólum og auka öryggi nemenda og starfsfólks. Skólastjórar í Hafnarfirði vilja takmarka aðgang að skólum og fá fjármagn til öryggisúrbóta. Í Reykjavík hafa einstaklingar eða hópar farið inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, eins og Vísir greindi frá í vikunni. Kolbrún Magnúsdóttir bæjarfulltrúi segir að ekki eigi að bíða eftir alvarlegu atviki áður en ráðist sé í nauðsynlegar úrbætur í Hafnarfirði.
Vísir fjallaði á miðvikudag um áhyggjur af öryggi nemenda og starfsfólks í skólum Reykjavíkur. Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, sagði kennara óttast um öryggi sitt og kallaði eftir endurskoðun á því hvernig öryggi væri tryggt. Hún sagðist hafa heyrt af skólum þar sem kennslustofum væri læst meðan kennsla færi fram. Skóla- og frístundaráð lýsti jafnframt áhyggjum af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki væru í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Í Hafnarfirði hafa skólastjórar grunnskóla og tónlistarskóla einnig kallað eftir því að aðgangur að skólabyggingum verði takmarkaður. Í sameiginlegu bréfi þeirra til fræðsluráðs, dagsettu 30. september, kemur fram að öryggisúttekt hafi leitt í ljós úrbótaþörf á fjölmörgum sviðum. Vilja læsa fleiri inngöngum og fjölga myndavélum Eyþór Víðisson öryggisfræðingur vann úttektina. Hann heimsótti alla grunnskóla bæjarins og Tónlistarskólann og ræddi við skólastjórnendur og umsjónarmenn fasteigna. Samkvæmt bréfinu vilja allir skólastjórnendur sem rætt var við takmarka aðgang að skólabyggingum meira en nú er, auka eftirlit, fjölga myndavélum og bæta merkingar. Markmiðið sé að lágmarka óheimilan aðgang og fækka inngöngum sem eru ólæstar meðan kennsla stendur yfir. Meðal tillagnanna eru dyrasímar með myndavélum, auknar aðgangsstýringar og skýrara verklag um aðgang foreldra, gesta og þjónustuaðila. Ráðstafanirnar þurfi jafnframt að taka mið af brunavörnum, rýmingu og aðgengi fatlaðs fólks. Í bréfinu eru engin tiltekin öryggisatvik nefnd sem kveikja að úttektinni. Segja úrbætur háðar fjármagni Skólastjórarnir óska eindregið eftir því að sérstakt og fullnægjandi fjármagn verði tryggt til framkvæmdanna. Þeir vilja tímasetta og fjármagnaða framkvæmdaáætlun þar sem úrbótum verði forgangsraðað eftir mikilvægi og aðstæðum í hverjum skóla. „Án viðeigandi fjármögnunar verður ekki unnt að fylgja niðurstöðum úttektarinnar eftir með þeim hætti sem nauðsynlegt er,“ segir í bréfinu. Fræðsluráð tók erindið fyrir 14. október og vísaði því til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2027. Með þeirri afgreiðslu var ekki samþykkt fjárveiting til úrbótanna. Fulltrúi grunnskólakennara tók undir erindið og lagði áherslu á að auka öryggistilfinningu nemenda og starfsfólks gagnvart utanaðkomandi áreiti. Kallar eftir aðgerðum áður en eitthvað gerist Kolbrún Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði, fjallaði um úttektina í skoðanagrein á Vísi í gær. Þar sagði hún bæjaryfirvöld þurfa að bregðast við þeim veikleikum sem hefðu verið greindir áður en þeir leiddu til alvarlegra atvika. Hún kallaði eftir kostnaðarmati, forgangsröðun og skýrri ábyrgð á framkvæmd úrbóta. Áætlunin þyrfti að sýna hvaða verkefni yrðu unnin fyrst og hvenær hverjum verkþætti ætti að ljúka. Jafnframt þyrfti reglulega eftirfylgni til að tryggja að niðurstöður úttektarinnar skiluðu sér í auknu öryggi barna og starfsfólks.
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira