Lífið

Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu

Freyja Þórisdóttir skrifar
Afi Ylfu aðstoðaði hana við að skrifa skeytið og segist hún vera búin að láta hann vita af tíðindunum.
Afi Ylfu aðstoðaði hana við að skrifa skeytið og segist hún vera búin að láta hann vita af tíðindunum. Aðsend

Hin níu ára Ylfa Björk Einarsdóttir fékk í vikunni svar við flöskuskeyti sem hún skrifaði og sleppti í sjóinn í sumar á Vestfjörðum. Það sem vakti mesta undrun hennar var að sú sem fann skeytið er staðsett í Dubrovnik í Króatíu og hefur skeytið því ferðast gríðarlega langa leið á einungis tveimur mánuðum. 

„Ég bjóst við að fá svona svar eftir kannski svona eitt, tvö ár eða eitthvað,“ segir Ylfa í samtali við blaðamann Vísis en hún hafi verið mjög hissa á því að fá svar frá finnskri stelpu sem væri á ferðalagi og hefði fundið skeytið í Króatíu.

Naut aðstoðar afa

„Mér fannst það mjög skrýtið. Ég var bara að hringja í mömmu mína og svo sagði hún mér að hún hefði fengið skilaboð frá einhverri stelpu í Króatíu sem hafði fundið flöskuskeytin frá mér,“ útskýrir Ylfa en hún skrifaði og myndskreytti skeyti sem hún setti svo í endurnýtta ginflösku með hjálp afa síns þann 14. ágúst og henti í sjóinn nærri Ögri í Ísafjarðardjúpi.

Skeytinu var kastað í sjóinn á Vestfjörðum.Aðsend

„Ég svona skrifaði og afi kom með svona hugmyndir til að skrifa,“ segir hún og bætir við að hún sé þegar búin að láta hann vita af fréttunum.

Í tölvupósti sem móðir Ylfu fékk sendan þann 14. október segist stelpa hafa fundið skeytið og spyr hvort hún eigi að halda því eða pakka því aftur í flöskuna og henda út í sjó á ný svo að aðrir geti fundið það seinna.

Mun skrifa fleiri

Ylfa fylgdist grannt með sólmyrkvanum í sumar ásamt mömmu sinni, Sólbjörtu Sigurðardóttur, og litla bróður sínum honum Ísidór.Aðsend

„Kannski má hún bara eiga þetta,“ segir Ylfa en stelpan hafði einnig sagst vera mikill Harry Potter-aðdáandi og hafa gaman af því að teikna, bæði tvenn atriði sem kom fram í skeytinu að væru áhugamál Ylfu.

Ylfa segist „alveg örugglega“ ætla að skrifa fleiri flöskuskeyti enda hafi þetta gengið vonum framar. Annars séu þau fjölskyldan að bíða spennt eftir svari frá stelpunni þar sem hún segir betur frá því nákvæmlega hvar hún hafi fundið skeytið og hvernig ástandið hafi verið á flöskunni.

Undirrituð sagðist ætla að reyna að ná í haffræðing til þess að komast til botns í því hvernig svona lagað gengi fyrir sig, sem gekk svo ekki, það virkaði svo ótrúlegt að skeytið hefði ferðast svo langa leið á svo stuttum tíma.


Ert þú haffræðingur eða telur þú þig geta svarað spurningunni: meikar þetta ferðalag skeytisins sens? Endilega sendu okkur ábendingu  á frettastofa@syn.is eða með fréttaskoti hér.


„Greinilega fljótari en pósturinn,“ segir þá Einar Stefánsson, pabbi Ylfu, sem segir þá að hún hafi ætlað að skeytið myndi reka á land nær, svo sem á Englandi.

Einar birti færslu um atburðinn á Facebook-síðu sinni þar sem hann veltir því upp hvort að þetta ferðalag skeytisins „meiki sens“ og biðlar til þeirra sem gætu svarað að fræða okkur hin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.