Innlent

Þyrlan kölluð út vegna slyss á há­lendinu

Freyja Þórisdóttir skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á níunda tímanum í gær að beiðni lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Þeim hafði þá borist tilkynning um slys á hálendinu norðan Vatnajökuls, á Gæsavatnaleið. 

Er þetta meðal þess sem kemur fram í færslu sem birt var á Facebook-síðu lögreglunnar en þar segir að skömmu eftir 20:30 í gærkvöldi hafi viðbragðsaðilar verið ræstir út í kjölfar tilkynningar.

Lögreglumenn, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk frá björgunarsveitunum Þingey, Stefáni í Mývatnssveit, Hjálparsveit skáta í Aðaldal, Dalbjörg og Súlum á Akureyri hafi farið á vettvang.



Aðgerðum sé nú lokið á vettvangi og viðbragðsaðilar komnir til síns heima en í færslunni kemur ekki fram neitt frekar um málsatvik né hversu margir hafi slasast. Nánari upplýsingar verði veittar síðar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×