Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Agnar Már Másson skrifar 17. október 2026 19:43 Viktor Árnason stjórnarmaður, Ari Orrason formaður og Elvar Freyr Fossdal Sigfússon stjórnarmaður. Á mynd vantar Elísabetu Freyju Úlfarsdóttur. Aðsend Hinn 26 ára Ari Orrason var í dag kjörinn nýr formaður Ungra vinstri grænna á landsfundi ungliðahreyfingarinnar sem var haldin á Center Hotel Plaza í miðborginni.
Ari tekur við af Illuga Gunnarssyni sem hefur gegnt formennsku frá því í febrúar á þessu ári. Í stjórn voru einnig kjörin Elísabet Freyja Úlfarsdóttir, sem er 25 ára bókasafnsvörður, Elvar Freyr Fossdal Sigfússon, 24 ára verkamaður, og Viktor Árnason, 23 ára líffræðingur. Jafnframt samþykkti hreyfingin ályktun í þremur köflum er varða síónisma, gervigreind og jafnrétti. Í ályktuninni kemur fram að UVG styðju ályktun Sameinuðu þjóðanna númer 3379 frá 1975, sem skilgreinir síonisma sem kynþáttahatur, og ályktun Græningja Englands og Wales/Cymru um sama efni frá flokksþingi þeirra í ár. ngliðahreyfingin hvetur til þess að VG geri hið sama á flokkstigi. Þá álykta ungliðarnir gegn notkun gervigreindar: „Þar sem að gervigreind hefur á örfáum árum leitt til niðurbrots lýðræðisríkja, aukins eftirlits með almennum borgurum, stríðsglæpa, versnandi kjara verkafólks og er óhóflega kræf á lífsnauðsynlegar náttúruauðlindir, telur UVG gervigreind í núverandi formi og mynd vera ógagn fyrir mannkynið og plánetuna sem við byggjum. Því einsetur UVG sér að sýna fordæmi og ályktar að hún noti ekki „skapandi“ gervigreind í sínu starfi,“ segir í ályktuninni þar sem tekið er fram að hreyfingin muni eftir fremsta megni styðja við manngerða menningu og listir í þeim auglýsingum, viðburðum og verkefnum sem hún tekur þátt í, sérstaklega til stuðnings ungum listamönnum. „Ásamt því skuldbindur UVG sig að segja sig skilyrðislaust úr samstarfsverkefnum í framtíðinni ef samstarfsaðilar gerast sekir um beitingu gervigreindar. UVG hvetur einnig allar aðrar ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka að gera hið sama.“ Að lokum er ályktað um jafnrétti þar sem fram kemur að mikilvægt sé að hreyfingin lyfti upp röddum kvenna og kvára og valdefli þau. „Okkur ber að líta til ungliðahreyfinga á sama reki og við í nágrannalöndunum og sækjast eftir að læra af þeim og sækja innblástur í þessum málum. Sem dæmi má nefna jafnréttisstefnu ungra rauðingja í Noregi (Rødt Ungdom).“
Vinstri græn Alþingi Gervigreind Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira