Innlent

Syrgja starfs­mann sem lést í slysi

Agnar Már Másson skrifar
Maðurinn sem lést var fjölskyldufaðir búsettur á Akureyri.
Maðurinn sem lést var fjölskyldufaðir búsettur á Akureyri. Facebook

Fjölskyldufaðirinn sem lést í jeppaslysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudag var starfsmaður Kraftbíla á Akureyri. Fyrirtækið segir í færslu á samfélagsmiðlum að andlátið hafi skilið eftir sig stórt skarð í hjarta fyrirtækisins.

„Það kom stórt skarð í hjarta Kraftbíla og starfsmanna fyrirtækisins um helgina,“ skrifa forsvarsmenn fyrirtækisins Kraftbíla á Akureyri í færslu á Facebook en fyrirtækið þjónustar vörubíla, vinnuvélar og búvélar.

„[Þ]að mun taka okkur tíma að finna styrkinn okkar aftur og halda áfram, en saman getum við það með hjálp og góðum hugsunum. Því biðjum við um að okkur verði sýnd þolinmæði meðan við öll á Kraftbílum, starfsmenn og fjölskyldur finnum styrkinn okkar á ný.“

Maðurinn, sem var fjölskyldufaðir búsettur á Akureyri, lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa, að sögn lögreglu.

Björgunarsveitarmenn fluttu samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins veitti því áfallahjálp. Að sögn varðstjóra lögreglu er ekki að vænta frekari upplýsinga um málið í dag.


Tengdar fréttir

Maðurinn sem lést var Íslendingur

Maðurinn sem lést í slysi norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var fjölskyldufaðir búsettur á Norðurlandi.

Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið

Karlmaður á fimmtugsaldri var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið í gærkvöldi. Slysið átti sér stað þegar tíu manna hópur ferðafólks var að reyna að losa fastan jeppa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×