Erlent

Fjórir her­menn létust í elds­voða

Agnar Már Másson skrifar
Viðbragðsaðilar við vinnu á vettvangi í gærkvöldi.
Viðbragðsaðilar við vinnu á vettvangi í gærkvöldi. AP/Canadian Press

Fjórir hermenn létu lífið og tugir slösuðust þegar eldur kviknaði á æfingarsvæði Kanadahers í borginni Wainwright í Kanada í gærkvöldi.

Mark Carney, forsætisráðherra landsins, greindi frá þessu í yfirlýsingu í dag. Hann hefur gefið út að flaggað verði í hálfa stöng um allt land vegna harmleiksins.

Viðbragðsaðilar hafa náð tökum á eldinum en eru enn á vettvangi.

Kanadíska ríkissjónvarpið, CBC, greinir frá því að eldur hafi kviknað við æfingu í herstöðinni í Wainwright, sem er í Alberta-ríki í Kanada. Úkall hafi borist um klukkan 16 að staðartíma, eða um 22 að íslenskum tíma.

Yfirleitt eru um sjö hundruð hermenn og þrjú hundruð borgarar við vinnu í herstöðinni að sögn CBC.

Ekkert bendir til þess að um hryðjuverk sé að ræða, að sögn varnamálaráðuneytis Kanada. Rannsókn á eldsupptökunum stendur enn yfir.

Carney sagði að ráðamenn myndu veita frekari upplýsingar um atvikið síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×