Skoðun

Fæðingar­or­lof fyrir ömmu og afa?

Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Þótt foreldrar beri meginábyrgð á uppeldi barna sinna gegna fleiri mikilvægu hlutverki í lífi barna. Afar, ömmur, frænkur, frændur og fjölskylduvinir geta verið hluti af því stuðningsneti sem veitir börnum öryggi, umhyggju og sterk tengsl.

Fjölskyldur eru ólíkar og aðstæður þeirra sömuleiðis. Stuðningsúrræðin þurfa því að vera fjölbreytt og löggjafinn á ávallt að vera vakandi fyrir því hvernig þróa megi þau í takt við breyttar þarfir samfélagsins. Í því ljósi er eðlilegt að skoða hvort heimila eigi foreldrum að framselja allt að fjórar vikur af fæðingarorlofi sínu til einstaklings sem stendur fjölskyldunni nærri. Það gæti verið amma, afi, annar ættingi eða náinn fjölskylduvinur. Markmiðið væri að tryggja börnum góða umönnun, styrkja tengsl þeirra við fólkið sem stendur þeim næst og gefa foreldrum aukið svigrúm til að haga fjölskyldulífinu eftir eigin aðstæðum og þörfum.

Sænskar ömmur og afar í fæðingarorlofi

Árið 2024 tóku gildi breytingar á sænska fæðingarorlofskerfinu sem heimila foreldrum að framselja hluta fæðingarorlofsréttinda sinna til annarra einstaklinga sem falla undir sænska almannatryggingakerfið og annast barnið á meðan orlofinu stendur. Foreldrar með sameiginlega forsjá geta hvort um sig framselt allt að 45 dögum, en foreldrar sem fara einir með forsjá allt að 90 dögum. Sá sem tekur við réttindunum fær greiðslur sem miðast við eigin tekjur.

Samkvæmt úttekt sænsku almannatryggingastofnunarinnar nýta foreldrar sem fara einir með forsjá hlutfallslega oftar heimildina til framsals en aðrir forsjáraðilar. Breytingin hefur þannig í fyrsta sinn gert sumum þeirra kleift að deila fæðingarorlofsdögum með öðrum einstaklingi og kann því að nýtast þessum hópi sérstaklega vel. Algengast er að dagarnir séu framseldir til ættingja, sem bendir til þess að heimildin sé einkum nýtt til að virkja þann stuðning sem þegar er til staðar innan stórfjölskyldunnar.

Í úttektinni kemur jafnframt fram að áhrif breytingarinnar á heildarskiptingu fæðingarorlofs milli kynjanna hafi hingað til verið lítil. Flestir foreldrar hafa kosið að nýta ekki heimildina og þeir sem það gera framselja að jafnaði aðeins um 13 daga, þrátt fyrir að heimilt sé að framselja allt að 90. Orlofsréttur sem bundinn er við foreldranna og takmarkanir á fjölda framseljanlegra daga draga jafnframt úr mögulegum áhrifum breytingarinnar á jafnrétti kynjanna. Vert er að taka fram að fæðingarorlofið í Svíþjóð eru 480 dagar.

Framsækið fæðingarorlofskerfi

Íslenska fæðingarorlofskerfið hefur tekið miklum framförum á síðustu áratugum og Framsókn hefur verið leiðandi í þeirri þróun. Árið 2000 lagði Páll Pétursson, þáverandi félagsmálaráðherra Framsóknar, fram frumvarp sem tryggði feðrum sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs. Árið 2020 fylgdi Ásmundur Einar Daðason, þáverandi félags- og barnamálaráðherra Framsóknar, þessum umbótum eftir með lögum sem lengdu samanlagt fæðingarorlof foreldra í tólf mánuði úr níu. Þessar breytingar hafa stuðlað að jafnari skiptingu umönnunarábyrgðar og auknum samvistum barna við báða foreldra sína. Þau markmið eiga áfram að vera í forgrunni. En samfélagið breytist og löggjöfin þarf að þróast með því. Fyrir sumar fjölskyldur gæti það verið dýrmætt að amma eða afi tæki að sér umönnun barns í nokkrar vikur.

Rétturinn til fæðingarorlofs er mikilvægur þáttur í réttindum fólks á vinnumarkaði. En fæðingarorlof snýst um meira en það. Það snýst líka um að gefa börnum og fjölskyldum tíma til samvista, umönnunar og tengslamyndunar. Foreldrar gætu áfram nýtt allan rétt sinn sjálfir eða kosið að framselja allt að fjórar vikur til einstaklings sem þeir treysta og stendur fjölskyldunni nærri. Hugmyndin felur þannig í sér aukið valfrelsi innan núverandi kerfis.

Ég hvet Alþingi til að taka málið til skoðunar og stíga næsta skref í þróun fæðingarorlofskerfisins með því að heimila foreldrum að framselja hluta fæðingarorlofs síns til nátengdra einstaklinga. Við eigum að byggja samfélag þar sem kerfin mæta þörfum fólks, en ekki þar sem fólk þarf sífellt að laga líf sitt að kerfunum.

Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar.




Skoðun

Sjá meira


×