75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar 20. október 2026 18:31 Stjórn Krabbameinsfélags Íslands lagði fyrir aðalfund félagsins 9. maí síðastliðinn ársreikning fyrir árið 2025 þar sem 75 milljónir króna höfðu verið færðar til gjalda sem „Styrkur til stofnunar Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins“. Í skýrslu stjórnar segir orðrétt: „Á árinu 2025 stofnaði félagið Framfarasjóð Krabbameinsfélagsins með 75.000.000 kr. stofnframlagi.“ Ársreikningurinn var undirritaður af stjórn og framkvæmdastjóra, félagskjörnir skoðunarmenn fundu „ekkert athugavert“ og endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers (PwC) gaf fyrirvaralaust álit. Aðalfundurinn samþykkti reikninginn. Gjaldfærslan lækkaði birta afkomu félagsins um 75 milljónir króna. Hagnaður ársins 2025 var samkvæmt reikningnum 113 milljónir króna en hefði verið 188 milljónir án hennar. Færslan nemur tveimur þriðju hlutum af birtum hagnaði ársins. Hér eru ekki á ferðinni smávægilegar misfellur í upplýsingagjöf eða minni háttar yfirsjón. 75 milljónirnar voru í árslok 2025 á vörslureikningi endurskoðunarfyrirtækisins sem áritaði reikninginn. En hvað þýðir það? Eigandalaust fé í vörslu endurskoðandans Samkvæmt gögnum hjá Sýslumanninum á Vestfjörðum voru 75 milljónir króna millifærðar af reikningi Krabbameinsfélags Íslands inn á vörslureikning PwC mánudaginn 29. desember 2025, tveimur dögum fyrir lok reikningsársins. Skýring greiðslunnar var „mf sjodur a PWC“. Staðfestingin sem sýslumaður fékk á greiðslu stofnfjárins var tölvupóstur frá Söru Henný H. Arnbjörnsdóttur, löggiltum endurskoðanda og meðeiganda hjá PwC, dagsettur 28. maí 2026, ásamt skjáskoti af millifærslunni. Sara Henný er sami endurskoðandi og áritaði ársreikning Krabbameinsfélagsins fyrirvaralaust 8. maí 2026. Féð fór þannig af reikningi félagsins á árinu 2025. Það fór hins vegar ekki til Framfarasjóðsins, því hann var ekki til. Hann hafði hvorki skipulagsskrá, stjórn né kennitölu. Stofnskjal hans, skipulagsskráin sem kveður á um 75 milljóna króna stofnframlag, var ekki undirritað fyrr en í júlí 2026. Í árslok 2025 var ekki til neitt skjal sem skuldbatt félagið til að greiða sjóðnum eina krónu. Féð lá einfaldlega á vörslureikningi PwC, endurskoðunarfyrirtækis félagsins. Endurskoðandinn staðfesti það sjálf. Í tölvupóstinum 28. maí 2026 skrifar hún: „Við staðfestum að búið er að leggja 75 milljónir króna inn á vörslureikning PwC sem við munum varðveita þar til stofnun Framfarasjóðsins er gengin í gegn og búið að stofna bankareikning fyrir sjóðinn sem hægt er að leggja umrædda fjárhæð inn á.“ Gjaldfærsla er yfirlýsing um að fé sé ekki lengur eign félagsins. Með gjaldfærslunni lýstu stjórn og framkvæmdastjóri því yfir, og endurskoðandinn staðfesti, að 75 milljónirnar væru ekki lengur eign Krabbameinsfélagsins í árslok 2025. Samt átti enginn annar þær. Í bókum félagsins var féð því eins og munaðarlausar 75 milljónir: hvorki eign Krabbameinsfélagsins, því það hafði verið gjaldfært, né eign sjóðsins, því hann var ekki til. Á meðan lá það á vörslureikningi fyrirtækis endurskoðandans sem síðar áritaði reikninginn. Fé sem félag á enn, en hefur falið öðrum til einhvers konar vörslu, er áfram eign þess félags. Það átti að færa 75 milljónirnar sem eign í efnahagsreikningi og gera grein fyrir vörslunni í skýringum. Það er rétt meðferð upplýsinga í ársuppgjöri. Þegar skipulagsskráin var undirrituð og staðfest sumarið 2026 varð framlagið óafturkræft, og þá, og fyrst þá, mátti gjaldfæra það. Í staðinn hvarf eignin úr bókunum. Í efnahagsreikningi er hvergi getið um 75 milljónir í vörslu PwC, Framfarasjóðurinn er ekki nefndur meðal tengdra aðila, eins og Vísindasjóður félagsins er, og í skýringum er ekki stafkrókur um vörsluna. Eignir, eigið fé og hagnaður félagsins eru allt vantalin um 75 milljónir króna. Í 8. gr. laga um bókhald segir að sérhver færsla skuli „byggð á áreiðanlegum og fullnægjandi gögnum sem rekja má til viðskiptanna“. Í 5. gr. laga um ársreikninga segir að ársreikningur skuli gefa glögga mynd af afkomu og efnahag. Millifærsla í vörslu endurskoðanda er ekki viðskipti við sjóð sem ekki er til, og reikningur sem fer þannig með 75 milljónir króna gefur ekki glögga mynd af neinu. Ég hef óskað skýringa hjá fjármálastjóra og félaginu sjálfu á því hvar þessar 75 milljónir voru í árslok 2025, hvaða fylgiskjal liggur að baki færslunni og hvenær og inn á hvaða reikning fjármunirnir voru greiddir. Fyrirspurnina sendi ég skömmu eftir aðalfundinn. Fimm mánuðum síðar hef ég ekkert svar fengið. Svarið fann ég að lokum hjá sýslumanninum á Vestfjörðum, ekki hjá félaginu sem ég á aðild að. Árið 2025 eða árið 2026? Fjórum dögum eftir aðalfundinn, 13. maí 2026, birti Krabbameinsfélagið frétt um fundinn á vef sínum. Í fréttinni segir að „stjórn Krabbameinsfélagsins ákvað að stofna á árinu“ nýjan sjóð, að „hefur verið ákveðið að 75 milljónir króna myndi stofnframlag hans“ og að „undirbúningur er í fullum gangi“. Þetta er ekki lýsing á sjóði sem stofnaður var árið 2025 og fékk þá 75 milljónir króna í stofnframlag. Þetta er lýsing á ákvörðun um sjóð sem á eftir að stofna og stofnframlagi sem á eftir að myndast. Opinber gögn um stofnun sjóðsins staðfesta þetta. Samkvæmt tilkynningu til sýslumanns var stjórn sjóðsins skipuð á fundi 5. maí 2026, þremur dögum áður en ársreikningurinn var undirritaður. Samkvæmt skipulagsskránni er það stjórn Krabbameinsfélagsins sem tilnefnir hana. Skipulagsskráin sjálf var undirrituð rafrænt af stjórnarmönnum Krabbameinsfélagsins, sem stofnanda, 1. og 2. júlí 2026. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum staðfesti hana 10. ágúst 2026 og sjóðurinn fékk kennitölu nokkrum dögum síðar. Tölvupóstar framkvæmdastjórans og endurskoðandans, sem fylgdu umsókninni til sýslumanns, taka af allan vafa. Hinn 19. maí 2026, ellefu dögum eftir að hún undirritaði ársreikninginn, skrifaði Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri til Söru Hennýjar og annars starfsmanns PwC: „Loksins er ég komin með flest það sem þarf til að ganga formlega frá stofnun Framfarasjóðsins.“ Og 28. maí, tuttugu dögum eftir að hún áritaði ársreikninginn fyrirvaralaust, skrifaði endurskoðandinn að PwC myndi varðveita féð „þar til stofnun Framfarasjóðsins er gengin í gegn“. Þetta þýðir að sömu stjórnarmenn og staðfestu með undirskrift sinni 8. maí að sjóðurinn hefði verið stofnaður árið 2025 undirrituðu stofnskjal hans tæpum tveimur mánuðum síðar. Hlíf Steingrímsdóttir, Áslaug Kristjánsdóttir, Jóhanna Eyrún Torfadóttir, Pétur Þór Jónasson, Sigurður Hannesson og Vilhjálmur Egilsson rituðu nöfn sín undir hvort tveggja. Sama stjórn sagði því aðalfundinum tvennt á sama fundi. Í ársreikningnum, sem fundurinn var beðinn að samþykkja, hafði sjóðurinn verið stofnaður árið 2025 og stofnframlagið gjaldfært og tugir milljóna teknar út úr bókhaldi Krabbameinsfélags Íslands. Í tilkynningu á fundinum var stofnunin enn í undirbúningi. Hvort tveggja getur ekki verið rétt. Og þeim sem undirrituðu reikninginn var fullkunnugt um hvort var rétt, því það var stjórnin sjálf sem tilkynnti fundinum að undirbúningur stæði enn yfir. Á þeim tíma höfðu 75 milljónirnar legið á reikningi PwC í rúma fjóra mánuði. Lagalega skiptir þetta öllu máli og málið er í öllum atriðum grafalvarlegt. Ársreikningur á að sýna stöðu félagsins eins og hún var á reikningsskiladegi, 31. desember 2025. Atburðir eftir þann dag geta aðeins haft áhrif á reikninginn ef þeir varpa ljósi á skuldbindingu sem þegar var til í árslok. Sjóður sem stofnaður er í ágúst 2026, með stofnskjali sem undirritað var í júlí 2026, getur ekki skapað 75 milljóna króna gjöld á árinu 2025. Krabbameinsfélag Íslands starfar samkvæmt eigin lögum í samræmi við lög nr. 110/2021 um félög til almannaheilla. Í 34. gr. þeirra laga segir að það varði sektum eða fangelsi allt að tveimur árum að „skýra vísvitandi rangt eða villandi frá högum félags“ í ársreikningi eða yfirlýsingum til aðalfundar. Svo alvarlegum augum lítur löggjafinn það að aðalfundur almannaheillafélags fái rangar upplýsingar. Endurskoðandinn sem geymdi féð Hlutur endurskoðandans er kapítuli út af fyrir sig. Sara Henný H. Arnbjörnsdóttir, löggiltur endurskoðandi hjá PwC, tók við 75 milljónum króna af fé Krabbameinsfélagsins inn á vörslureikning PwC 29. desember 2025. Hún áritaði síðan 8. maí 2026 fyrirvaralaust ársreikning sem sýndi þessar sömu 75 milljónir sem greiddan styrk til sjóðs sem ekki var til, án þess að vörslunnar væri getið einu orði. Hún las skýrslu stjórnar, eins og endurskoðanda ber að gera, þar sem sagði að sjóðurinn hefði verið stofnaður árið 2025, og gerði enga athugasemd. Og 28. maí 2026, tuttugu dögum eftir áritunina, sendi hún framkvæmdastjóranum tölvupóst þar sem hún staðfesti að féð væri á vörslureikningi PwC og yrði varðveitt „þar til stofnun Framfarasjóðsins er gengin í gegn“. Sá tölvupóstur, ásamt skjáskoti af millifærslunni, var staðfestingin sem sýslumaður fékk á greiðslu stofnfjárins. Í lok hans spyr hún hvort þetta sé „nægjanleg staðfesting“. Endurskoðandi á að vera óháður þeim sem hann endurskoðar. Á því hvílir allt það traust sem áritun hans á að skapa. Við venjulega endurskoðun leitar endurskoðandi staðfestingar hjá þriðja aðila sem geymir eignir félagsins. Hér var þriðji aðilinn endurskoðandinn sjálfur. Enginn vissi betur en hún hvar 75 milljónirnar voru í árslok 2025, því þær voru á vörslureikningi fyrirtækis sem hún er meðeigandi í. Og þremur vikum eftir áritunina skrifaði hún sjálf að stofnun sjóðsins væri ekki gengin í gegn. Samt staðfesti hún með áritun sinni að ársreikningurinn gæfi glögga mynd af efnahag félagsins. Áritun endurskoðanda á reikning sem lætur hverfa úr bókunum fé sem hann varðveitti sjálfur hefur í mínum huga ekkert gildi. Hvernig samrýmist það lögum um endurskoðendur og endurskoðun og siðareglum stéttarinnar að endurskoðandi taki að sér vörslu fjár fyrir félag sem hann endurskoðar? Með hvaða skilmálum var féð varðveitt? Gat Krabbameinsfélagið kallað það til baka? Hvað varð um vaxtatekjur af 75 milljónum króna í rúma sjö mánuði? Eru það tekjur Krabbameinsfélags Íslands eða PwC? Er hægt að gjaldfæra vaxtatekjur sem verða til utan félagsins hjá félaginu sjálfu og samþykkir Ríkisskattstjóri að slíkar vaxtatekjur séu undanþegin skatti? Og hvers vegna var endurskoðandi félagsins valinn til að geyma féð en ekki banki eða lögmaður? Ég tel fullt tilefni til að Endurskoðendaráð taki vinnubrögð endurskoðandans og PwC í þessu máli til skoðunar. Félagskjörnir skoðunarmenn fundu „ekkert athugavert“. Fulltrúar aðildarfélaganna á aðalfundi eiga að hafa eftirlit með störfum stjórnar og taka afstöðu til reikningsskilanna á grundvelli réttra upplýsinga. Þeir eiga ekki að þurfa að rannsaka einstakar bókhaldsfærslur sem stjórnendur og löggiltur endurskoðandi hafa þegar yfirfarið og staðfest. Hér stóð löggiltur endurskoðandi báðum megin borðsins og allur feluleikur stjórnenda KÍ og PwC með tugi milljóna gerði þeim auðvitað erfitt fyrir. Sjóður sem stjórnin hafði ekki heimild til að stofna Samkvæmt lögum Krabbameinsfélagsins fer aðalfundur með æðsta vald í málefnum félagsins. Stjórnin fer með vald á milli aðalfunda og lögin heimila henni að stofna sjálfstæðar starfseiningar innan félagsins. Þau veita henni hins vegar enga heimild til að stofna nýjan lögaðila utan félagsins og leggja honum til fé þess. Sjálfseignarstofnun er einmitt slíkur lögaðili. Hún er ekki í eigu félagsins og aðalfundur þess hefur ekkert vald yfir henni eftir stofnun. Svona stór og mikilvæg ákvörðun verður að fara fyrir aðalfund með réttum hætti en ekki þeim ófaglegu vinnubrögðum sem stjórnendur KÍ og PwC hafa orðið berir að. Í 6. gr. laga félagsins segir jafnframt að ráðstöfun fjár úr varasjóði sé „aðeins heimil með samþykki aðalfundar“ og að varasjóðurinn eigi að fjármagna „viðamikil verkefni sem aðalfundur ákveður“. Í skýrslu stjórnar segir að eignasöfn félagsins geymi varasjóðinn. Stofnun nýs lögaðila með 75 milljóna króna stofnfé er viðamikið verkefni í hvaða skilningi sem er. Stjórnin veit vel hvaða leið á að fara í slíkum málum. Í sama ársreikningi leggur hún fyrir aðalfund tillögu um að allt að 75 milljónir króna verði veittar til aðgerðaáætlunar í krabbameinsmálum, og á sama fundi lagði hún til að 900 milljónir króna yrðu lagðar í skilgreindan varasjóð. Um Framfarasjóðinn var aðalfundinum hins vegar aðeins „tilkynnt“. Fundurinn var aldrei spurður. Ef framkvæmdastjóri, fjármálastjóri, endurskoðandi og stjórn félagsins telja sig hafa staðið rétt að málum um stofnun Framfarasjóðs á aðalfundi ættu allir þessir aðilar að lesa lög KÍ vandlega aftur. Millifærslan sjálf vekur sömu spurningar. Samkvæmt 19. gr. laga um félög til almannaheilla tekur daglegur rekstur ekki til ráðstafana sem eru óvenjulegar eða mikils háttar. Millifærsla á 75 milljónum króna af reikningi félagsins inn á reikning endurskoðanda þess, tveimur dögum fyrir áramót, í þágu sjóðs sem ekki var til, er hvort tveggja óvenjuleg og mikils háttar. Ekki liggur fyrir hvort bókuð ákvörðun stjórnar um hana lá fyrir 29. desember 2025. Ef svo er ber stjórnin öll ábyrgð á henni. Ef ekki fóru þeir sem framkvæmdu hana út fyrir heimildir sínar. Samkvæmt skipulagsskrá Framfarasjóðsins er Krabbameinsfélag Íslands eini stofnandi sjóðsins og leggur honum til 75 milljónir króna. Skipulagsskrána undirrituðu stjórnarmenn félagsins fyrir hönd þess. Aðalfundur kemur þar hvergi við sögu. Sýslumaður kannar ekki hvort stofnandi hafi fylgt eigin lögum þegar hann staðfestir skipulagsskrá. Hann treystir því að þeir sem undirrita fyrir hönd stofnandans hafi til þess fullgilda heimild. Samkvæmt reglugerð um sjálfseignarstofnanir á jafnframt að staðfesta að stofnfé hafi verið greitt til sjálfseignarstofnunarinnar. Staðfestingin sem sýslumaður fékk segir berum orðum að féð hafi ekki verið greitt sjóðnum, heldur sé það í vörslu PwC og verði lagt inn á reikning sjóðsins þegar hann hefur verið stofnaður. Ég fæ ekki séð að ákvörðun stjórnarinnar um að stofna sjóðinn og leggja honum til 75 milljónir króna eigi sér nokkra stoð í lögum félagsins. Að mínu mati var hún tekin án lögmætrar heimildar. Þannig voru upplýsingar sem framkvæmdastjóri sendi sýslumanni ófullnægjandi og rangar út frá lögum KÍ. Sjóður og sjálfseignarstofnun sem enginn hefur þörf fyrir Og til hvers er eiginlega verið að stofna þennan svokallaða Framfarasjóð? Öll verkefni Framfarasjóðsins, að styrkja forvarnir og þjónustu við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra, eru þegar skýrt skilgreind í lögum félagsins sjálfs. Félagið hefur bæði fjárhagslega burði og heimildir til að sinna þeim. Samt er stofnaður nýr lögaðili sem er sjálfstæður að nafninu til en lýtur í öllu stjórn Krabbameinsfélagsins. Samkvæmt skipulagsskránni tilnefnir stjórn félagsins stjórn sjóðsins og fagráð hans, staðfestir úthlutunarreglur og starfsreglur hans og tekur við árlegri skýrslu hans. Hún þarf jafnframt að samþykkja breytingar á skipulagsskránni og niðurlagningu sjóðsins. Bókhald og fjárreiður sjóðsins eru í höndum fjármálastjóra Krabbameinsfélagsins, sem einnig annast greiðslur úr honum. Prókúruhafar sjóðsins eru framkvæmdastjóri og fjármálastjóri félagsins, og í stjórn hans situr stjórnarmaður Krabbameinsfélagsins sem undirritaði ársreikninginn. Aðalfundur Krabbameinsfélagsins er hvergi nefndur. Sjóðurinn er sjálfstæður gagnvart félagsmönnum og aðalfundi, en ekki gagnvart þeim fámenna hópi sem stýrir félaginu. Það er mjög erfitt að sjá hvað þessi Framfarasjóður bætir við getu félagsins, annað en enn eitt lagið í lokuðu, ógagnsæju og sérlega ólýðræðislegu stjórnkerfi. Gjafafé og framlög almennings Krabbameinsfélag Íslands er almannaheillafélag sem byggir starfsemi sína að verulegu leyti á fjárframlögum almennings og erfðagjöfum og nýtur skattalegra ívilnana sem tengjast almannaheillastarfsemi. Í skýrslu stjórnar segir að það hafi meðal annars verið fyrir tilstuðlan erfðagjafa sem félagið gat „ráðist í stofnun Framfarasjóðs“. Fólk sem ánafnar félaginu eigur sínar eftir sinn dag á skilyrðislausan rétt á því að farið sé með þær af ráðdeild, að um ráðstöfun þeirra sé fjallað þar sem lög félagsins mæla fyrir um, og að rétt sé gerð grein fyrir þeim í reikningum félagsins. Sú ábyrgð verður ekki minni þótt stjórn og endurskoðandi hafi áritað ársreikninginn og hann verið samþykktur á aðalfundi. Ég er sjálfur félagsmaður í Krabbameinsfélagi Höfuðborgarsvæðisins og þar með Krabbameinsfélagi Íslands. Það er sérkennileg staða að félagsmaður sem spyr um 75 milljóna króna gjaldfærslu skuli ekki einu sinni fá svar. Í þessu lokaða og ógagnsæja stjórnkerfi virðist fjarlægðin milli almennra félagsmanna og þeirra sem fara með völdin, og telja sig greinilega eiga félagið, orðin óásættanlega mikil. Þetta ferli og þessi fjárhagslegi skollaleikur falla vel að þeirri fjármálaóreiðu og þeim stjórnarháttum sem ég hef áður gagnrýnt hjá Krabbameinsfélaginu og vakið hafa hjá mér grunsemdir um spillingu. Sífellt umfangsmeiri hluti starfseminnar virðist snúast um uppbyggingu skrifstofuhalds, markaðsdeildar, fjáröflunarherferða, auðsöfnunar, sjóðsstjórnunar, fasteignaverkefna og lúxusvæðingar vörumerkisins krabbamein. Þessi ósmekklegi krabbameinspartíheimur, sem kemur að mínu mati svo skýrt fram í kynningarmyndbandi félagsins fyrir Bleiku slaufuna árið 2023, er í órafjarlægð frá daglegum veruleika og erfiðleikum krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Þann veruleika þekki ég mjög vel af eigin raun eftir þungbær átök okkar fjölskyldunnar við sjúkdóminn undanfarin ár. Ég á sífellt erfiðara með að samræma átök okkar þeirri glansmynd sem Krabbameinsfélagið hefur dregið upp af starfsemi sinni þar sem aðalstefið virðist í æ ríkari mæli vera dansinn í kringum gullkálfinn. Lúxusvörumerkjavæðing krabbameinsins er í mínum huga orðin allt að því ógeðfelld. Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri þurfa að víkja Ársreikningur sem lagður er fyrir æðsta vald almannaheillafélags verður að gefa rétta mynd af fjárhag þess, og ráðstafanir sem lög félagsins ætla aðalfundi verða að koma fyrir aðalfund. Ég hef miklar og rökstuddar efasemdir um að stofnun sjóðsins hafi átt sér stoð í lögum félagsins og að rétt hafi verið staðið að umsókn um staðfestingu sýslumanns. Félagið verður að geta gert grein fyrir stórum sem smáum fjárhagsráðstöfunum og svarað málefnalegum spurningum um þær, í stað þess að láta óútskýrðar bókhaldsfærslur, handahófskenndar ákvarðanir stjórnar sem ekki eiga stoð í lögum félagsins og svarleysi grafa undan traustinu. Um það verður ekki samið, hvorki á skrifstofu félagsins né á aðalfundi. Hér er trúverðugleiki stjórnar, framkvæmdastjóra, fjármálastjóra og endurskoðanda undir. Ég hef fyrir löngu misst allt traust á framkvæmdastjóra og fjármálastjóra Krabbameinsfélags Íslands og tel þau alls ekki valda þeirri ábyrgð sem lög félagsins fela þeim. Í ljósi þeirra vinnubragða og þeirrar ábyrgðar sem hér er til umfjöllunar tel ég að bæði eigi að víkja nú þegar úr störfum sínum. Stjórnarhættir og forgangsröðun félagsins þurfa jafnframt gagngera endurskoðun. Stjórnin ber lögum samkvæmt fulla ábyrgð á ársreikningnum og getur ekki skýlt sér á bak við framkvæmdastjóra, fjármálastjóra eða endurskoðanda sem leggja rangar upplýsingar fyrir aðalfund. Sex stjórnarmenn undirrituðu bæði ársreikninginn í maí og stofnskjal sjóðsins í júlí. Og endurskoðandi sem tók við 75 milljónum af fé félagsins til vörslu á reikningi fyrirtækis sem hún er meðeigandi í og áritaði síðan reikning sem lét þær hverfa úr bókunum getur ekki áfram endurskoðað reikninga Krabbameinsfélags Íslands. Þar er ábyrgð þeirra 27 aðildarfélaga sem standa að Krabbameinsfélagi Íslands mjög mikil. Þau samþykktu ársreikning sem stangaðist á við það sem þeim var tilkynnt á sama fundi, og 75 milljónum króna af fé félagsins var ráðstafað til nýs sjóðs án þess að þau væru nokkru sinni spurð. Þau geta ekki látið sér nægja að samþykkja reikninga í blindni og treysta því að allt sé í lagi. Þau verða sjálf að krefjast skýringa, veita stjórn félagsins raunverulegt aðhald og axla þá ábyrgð sem aðild að Krabbameinsfélagi Íslands leggur þeim á herðar. Þau eiga ekki að veita stjórninni lausn frá ábyrgð fyrr en málið hefur verið gert upp að fullu. Á meðan þessi óvissa og fjármálaóreiða ríkir hjá Krabbameinsfélagi Íslands hvet ég almenning til að hætta alveg að veita félaginu hvers kynsfjárstuðning. Höfundur er stjórnmálafræðingur og aðstandandi krabbameinssjúklings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun