Enski boltinn

Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt

Andri Broddason skrifar
Skallaörninn Pheonix hefur vakið mikla athygli á leikjum Crystal Palace.
Skallaörninn Pheonix hefur vakið mikla athygli á leikjum Crystal Palace. Sebastian Frej/MB Media/Getty Images

Hópur dýrasinna skorar á Crystal Palace að hætta að vera með lifandi skallaörn sem lukkudýr félagsins. Árið 1973 fékk félagið viðurnefnið „Ernirnir“ og tók upp lukkudýrið til þess að standa undir nafni.

Árið 2010 var í fyrsta skipti sem félagið var með örn sem lukkudýr á leikdegi. Það var örninn Kayla og var hann á öllum leikjum liðsins í tíu ár. Árið 2020 lést Kayla og árið 2024 kom loks annar örn í staðinn sem bar nafnið Pheonix og hefur verið á leikjum Crystal Palace síðan.

Dýraverndarsamtökin Peta segja að fótboltaleikir séu ekki gott umhverfi fyrir erni og hvetja félagið til að hætta við að nota lifandi fugla. Samkvæmt samtökunum getur fuglinn orðið ringlaður og hræddur þar sem hann er ekki í sínu náttúrulega umhverfi. Venjulega forðast ernir mannfólk og geta því orðið sjálfum sér og öðrum áhorfendum að voða.

Í þau ár sem örn hefur verið á leikdegi hjá Crystal Palace hefur ekki mikið gerst sem gæti fært rök fyrir því að hætta að leyfa fuglinum að fljúga. Það hafa þó ekki allir mótherjar verið ánægðir með fuglinn.

Árið 2015 tók Crystal Palace á móti Charlton Athletic og þegar fuglinn var að fljúga reyndi stuðningsmaður Charlton að kýla örninn Kaylu. Tveimur árum síðar var hann dæmdur fyrir ofbeldisfulla hegðun í garð fuglsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×