„Mjög óheillavænleg þróun“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 21. október 2026 12:54 Stefán Niclas Stefánsson, lyfjafræðingur með áratugareynslu úr apóteki, hefur miklar áhyggjur aukinni neyslu geðrofslyfsins Quetapín við svefnleysi. Vísir Lyfjafræðingur segir stóraukna notkun geðrofslyfs við svefnleysi óheillaþróun. Lyfið geti valdið alvarlegum aukaverkunum, jafnvel í litlum skömmtum eins og hækkun á blóðfitu og blóðsykri. Hann telur að fólk geti orðið háð lyfinu og hvetur lækna til að hætta að ávísa því við svefnleysi.
Nær tvöfalt fleiri fengu geðrofslyfinu quetiapíni ávísað hér á landi í fyrra en fyrir tíu árum, eða um ellefu þúsund og fjögur hundruð manns. Tæplega fjögur prósent fólks á aldrinum þrjátíu til sextíu og fjögurra ára fengu lyfið, en hlutfallið var hæst meðal áttræðra og eldri, rúmlega sex prósent. Vísbendingar eru um að lyfið sé í auknum mæli notað við svefnvanda þótt það sé ekki samþykkt sem svefnlyf. Óheillavænleg þróun Stefán Niclas Stefánsson, lyfjafræðingur með áratugareynslu úr apóteki, hefur miklar áhyggjur af þróuninni. „Mér finnst þetta mjög óheillavænleg þróun af því að þetta lyf hefur umtalsverðar aukaverkanir. Það veldur hækkun á kólesteróli og blóðsykri jafnvel í litlum skömmtum,“ segir Stefán. Hann segist hafa orðið var við mikla aukningu í notkun quetiapíns undanfarin ár hjá fólki sem er að leysa út lyf, meðal annars við svefnvanda og til að draga úr kvíða. „Ég hef séð að fólk notar þetta bæði sem svefnlyf og líka sem róandi lyf til að taka yfir daginn. Margir þeirra eru líka komin á lyf til að lækka kólesteról og blóðsykur,“ segir Stefán. Hann telur varhugavert að ávísa lyfinu við svefnvanda þegar aðrar meðferðarleiðir komi til greina. „Það er sjúkdómsvæðing að setja fólk á þetta lyf sem þarf ekki á því að halda. Það ætti eingöngu að nota það í þau einkenni sem það er skráð fyrir,“ segir Stefán. Tengsl við þyngdaraukningu og hjarta-og æðasjúkdóma Stefán bendir á að rannsóknir hafi sýnt að quetiapín geti haft áhrif á efnaskipti og líkamsþyngd, jafnvel í litlum skömmtum. Í safngreiningu sem birt var árið 2025 og tók til rúmlega þrjú þúsund þátttakenda kom fram að lágskammtameðferð með quetiapíni tengdist marktækri þyngdaraukningu og lækkun á svokölluðu góða kólesteróli. Þá sýndi umfangsmikil dönsk rannsókn frá árinu 2022 tengsl milli notkunar quetiapíns í litlum skömmtum og aukinnar áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Í rannsókninni voru rúmlega sextíu þúsund notendur quetiapíns bornir saman við fólk sem notaði hefðbundin svefnlyf. Rannsóknin sýndi þó aðeins tengsl en staðfesti ekki að lyfið sjálft væri orsök aukinnar áhættu. Stefán segir niðurstöðurnar áhyggjuefni. „Lyfið veldur mikilli röskun á efnaskiptum líkamans og getur valdið þyngdaraukningu. Það getur líka valdið mikilli syfju og því hættulegt ef fólk er að keyra í undir áhrifum þess,“ segir Stefán. Telur að lyfið geti verið ávanabindandi Quetiapín er ekki talið hafa sömu ávanabindandi eiginleika og hefðbundin svefnlyf á borð við Imovane og Stilnoct. Stefán segir að í starfi sínu í apóteki hafi hann orðið var við að fólk sæki í lyfið og vilji leysa það út áður en fyrri lyfjaskammtur á að vera búinn. „Það eru líka margar rannsóknir sem sýna að það veldur líka ávana þannig að fólk sækir í þetta og vill leysa það út fyrir tímann,“ segir Stefán. Hann segir einnig mikið af ungu fólki vera komið á lyfið og telur að læknar ávísi því stundum í stað hefðbundinna svefnlyfja. „Læknar ávísa þessu gjarnan til þess að losna við að skrifa upp á Stilnoct eða Imovane. En það er alls ekki góður kostur,“ segir Stefán. Allir Eftir aldri Allir Fjöldi einstaklinga/1.000 íbúa Vill að læknar hætti að ávísa lyfinu við svefnleysi Stefán hvetur lækna til að endurskoða notkun quetiapíns við svefnvanda og telur mikilvægt að leita annarra meðferðarleiða. „Ég hvet lækna til þess að hætta að ávísa þessu lyfi við svefnleysi og snúa sér frekar að ákjósanlegri lyfjum til að bæta svefninn,“ segir Stefán. Hann gagnrýnir jafnframt að of oft sé gripið til svefnlyfja án þess að nægilega sé kannað hvað valdi svefnvandanum. „Fólk er mjög fljótt að taka inn svefnlyf ef það á erfitt með svefn. Það er lítið verið að athuga hver er orsökin fyrir svefnleysinu og hvort það sé ekki hægt að gera eitthvað annað heldur en að taka inn lyf. Því oft er hægt að gera eitthvað annað,“ segir Stefán. Hann segir langvarandi notkun svefnlyfja einnig geta orðið að vana þar sem fólk telji sig ekki geta sofið án þeirra. „Fólk er byrjað að nota svefnlyf og tekur þetta bara inn á hverju kvöldi og hefur ekki prófað í langan tíma hvort það geti sofnað án þeirra. Þetta verður að vana,“ segir Stefán að lokum.
Lyf Embætti landlæknis Landspítalinn Heilsa Svefn Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fleiri fréttir Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk Sjá meira