Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Bjarki Sigurðsson skrifar 22. október 2026 07:51 Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Ölfusi. Vísir/Anton Brink Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir það mikilvægt að taka vel á móti fólki sem flyst hingað til lands en á sama tíma gæta sérstakrar varúðar gagnvart þeim sem aðlagast illa. Hann kallar eftir því að stjórnvöld safni og birti ítarlegri upplýsingar um innflytjendur, meðal annars um afbrot, atvinnuþátttöku og fjárhagsaðstoð eftir uppruna og dvalargrundvelli.
Síðustu daga komst Elliði í hann krappan á samfélagsmiðlum þegar hann birti mynd af mönnum sem hann tengdi við óeirðaöldu sem gengur nú yfir Frakkland. Myndin reyndist þó vera mun eldri og frá Svíþjóð, ekki Frakklandi. Elliði vildi meina að um augljóst grín væri að ræða þó svo að margir gagnrýndu hann fyrir að ala á kynþáttafordómum og að færslan væri til þess fallin að auka óöryggi í samfélaginu. Elliði fékk þó einnig lof fyrir færsluna en skýrði hana nánar í annarri færslu þar sem hann sagðist hafa miklar áhyggjur af hraðri fjölgun innflytjenda á ákveðnum svæðum. Myndina hefði hann birt til að gera grín að umfjöllun fjölmiðla sem sögðu mótmælin í Frakklandi stúdentamótmæli þó svo að ljóst væri að óeirðirnar væru keyrðar áfram af „öfgakenndum trúarkredduöflum í bland við öfgavinstrið“. Byggja umræðuna á staðreyndum Í morgun birti Elliði greinina „Góðvild er ekki stefna“ á Vísi. Í inngangi segir hann að byggja verði umræðuna um innflytjendamál á staðreyndum og ábyrgð. Það verði að vera hægt að ræða áhættuna sem fylgir því að taka á móti innflytjendum og viðurkenna þegar gögn sýna að stefnan sé ekki að skila þeim árangri sem við vildum. Þegar rætt sé um uppruna, trú og samfélagsbreytingar liggi mörkin milli málefnalegrar gagnrýni og óréttlátrar alhæfingar nærri. „Þess vegna skiptir máli að ég skýri hvað ég er að segja. Þá skiptir ekki síður máli að skýra hvað ég er ekki að segja,“ segir Elliði. Verði að skoða muninn Hann segist ekki vera að halda því fram að allir sem komi frá MENAPT-löndunum (Miðausturlöndum, Norður-Afríku, Afganistan, Pakistan og Tyrklandi) fremji afbrot, séu atvinnulausir eða vilji ekki aðlagast. Uppruni sé ekki örlög. „En það er heldur ekki málefnalegt að láta eins og enginn munur sé á því hvernig ólíkir hópar standa sig í atvinnu, afbrotatölum og þátttöku í velferðarkerfinu. Það er ekki hollt að loka augunum fyrir því að þeir sem hingað flytja eru ekki einsleitur hópur. Þegar opinber gögn sýna mun verðum við að skoða hann. Ekki til að stimpla einstaklinga, heldur til að móta stefnu sem virkar,“ segir Elliði. Það þurfi að rannsaka breytingar sem fólk upplifi í samfélaginu. Segir Elliði að ungar konur lýsi því yfir að þær treysti sér ekki til að taka leigubíla og fræðsluráð Reykjavíkurborgar hafi rætt hvort þörf sé á öryggisvörðum í skólum. Óttist fólk að innflytjendastefna eða framkvæmd hennar eigi þátt í einhverjum þessara vandamála eigi að skoða það af sömu nákvæmni og annað. Dönsk samantekt sýni mun Elliði vísar í samantekt danskra stjórnvalda þar sem kemur fram að afbrotavísitala fólks með uppruna í MENAPT-löndum sé töluvert hærri en þeirra sem eru af dönskum uppruna. Þar komi einnig fram að önnur kynslóð innflytjenda fremji frekar brot á hegningarlögum en fyrsta kynslóð. Sú staðreynd veki upp spurningar. „Hún bendir til þess að tíminn einn muni ekki laga allt. Þegar börn eru fædd í landinu, ganga í skólana þar og alast upp innan sama velferðarkerfis, en niðurstöðurnar eru samt verri á ákveðnum mælikvörðum, verður að spyrja hvort aðgerðirnar okkar séu að skila árangri og hvort áherslur séu réttar,“ segir Elliði. Þá sýni gögnin að þeir sem komu frá MENAPT-löndum á atvinnuleyfi séu almennt með hærri atvinnuþátttöku og lægri afbrotatíðni, sem bendi til þess að niðurstaðan sé ólík eftir því á hvaða grundvelli fólk flyst til landsins. „Gögn frá Danmörku benda til þess að upprunaland eitt og sér skýri ekki allt. Þeir hafa sýnt fram á að leiðin inn í landið, tengsl við atvinnu og þátttaka frá upphafi skipta miklu máli, jafnvel höfuðmáli,“ segir Elliði. Kallar eftir samantekt Hann setur út á að á Íslandi séu ekki birtar samantektir þar sem hægt sé að skoða afbrot, atvinnu, framfærslu og dvalargrundvöll eftir uppruna og ríkisfangi. „Þá er torvelt að vita hvort þróunin sé sú sama og í Danmörku, hvað skýri hana eða hvaða aðgerðir virki. Við höfum ekki efni á að láta ímyndunaraflið fylla í eyðurnar þar sem upplýsingar ættu að vera. Við megum ekki vera svo viðkvæm fyrir gagnrýni að við þorum ekki að rýna þessi mál og ræða,“ segir Elliði. Hann kallar eftir því að Hagstofan í samstarfi við Útlendingastofnun og sveitarfélög birti árlega samantekt um stöðu innflytjenda. Þar verði greint eftir upprunalandi, kyni og aldri en einnig eftir því hvort fólk hafi komið vegna vinnu, náms, fjölskyldusameiningar eða alþjóðlegrar verndar. „Greina þarf á milli fólks sem býr hér og þeirra sem koma hingað tímabundið. Sama gildir um fjárhagsaðstoð: við þurfum heildarmynd, ekki stakar tölur úr einum bæ. Slík skráning á að vera samantekin og verja persónuupplýsingar. Markmiðið er ekki að fylgjast með einstaklingum. Markmiðið er að geta metið opinbera stefnu og þjónustu á áreiðanlegum grunni,“ segir Elliði. Gagnrýnin stundum réttmæt Oft komi fram að vandinn sé ekki fólksins sem hingað kemur heldur okkar sjálfra, að við höfum ekki kennt tungumálið nógu vel, ekki veitt nægan stuðning og ekki búið til réttar aðstæður fyrir atvinnuþátttöku. Það séu gild sjónarmið og ríkið og sveitarfélögin beri þar ábyrgð. „En ábyrgð samfélagsins þýðir ekki að fjöldi eða samsetning komufólks skipti engu máli. Skólar, húsnæði, heilsugæsla, tungumálakennsla og vinnumarkaður hafa takmarkaða getu. Að taka fleiri inn en við getum stutt vel er hvorki sanngjarnt gagnvart þeim sem koma né þeim sem fyrir eru. Og þegar önnur kynslóðin stendur verr en sú fyrsta samkvæmt mikilvægum mælikvörðum verðum við að endurmeta bæði framkvæmd aðlögunar og hraða aðflutnings,“ segir Elliði. Verðum að taka vel á móti fólki Íslendingar megi ekki láta óttann við að vera útmálaðir sem rasistar stöðva alla umræðu. Þegar gögn sýni mun verði að spyrja hvað skýri hann og hvað sé hægt að gera. „Við eigum að taka vel á móti fólki. Við eigum að gera tungumálakennslu að raunverulegu forgangsverkefni, leggja áherslu á atvinnuþátttöku og skipuleggja þjónustuna af ábyrgð. En við eigum líka að setja skýrar væntingar, fylgja eftir reglum og halda flæði inn í landið innan þeirra marka sem samfélagið ræður við. Við eigum að gæta sérstakrar varúðar gagnvart þeim sem aðlagast illa. Góðvild án ábyrgðar er ekki stefna. Hún er von. Og opinbert vald má ekki byggja framtíð samfélagsins á von einni saman,“ segir Elliði.
Innflytjendamál Mótmælaalda í Evrópu 2026 Flóttafólk á Íslandi Ölfus Trúmál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira