Körfubolti

Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt

Andri Broddason skrifar
Obie Trotter varð á dögunum elsti leikmaður í sögu efstu deildar í körfubolta á Íslandi til þess að skora þriggja stiga körfu.
Obie Trotter varð á dögunum elsti leikmaður í sögu efstu deildar í körfubolta á Íslandi til þess að skora þriggja stiga körfu. Samsett/Vísir

Höttur vann mikilvægan sigur á Stjörnunni í annarri umferð Bónus-deildar karla í körfubolta en þar var nýtt met sett. Obie Trotter varð elsti leikmaðurinn til þess að skora þriggja stiga körfu í efstu deild á Íslandi.

Sérfræðingar Sýnar Sports fóru yfir allt það helsta sem gerðist í leiknum og ræddu afrek Trotter en hann er 42 ára. Fyrra metið átti Hlynur Elías Bæringsson en Trotter bætti það með 54 dögum.

Klippa: Obie Trotter bætti met Hlyns Bærings

Sérfræðingarnir ræddu metið og sögðu að Hlynur væri að öllum líkindum brjálaður yfir því að missa metið. Hlynur er mikill Stjörnumaður og bætti Trotter metið í Garðabænum á gamla heimavelli Hlyns sem hefur gert Hlyn enn reiðari.

„Það er geggjað að hann skuli enn þá vera að spila. Ég sagði í þætti um daginn að þetta væri gæi sem ætti bara að vera að spila á pollamótum en hann er mættur hingað í efstu deild,“ sagði Benedikt Guðmundsson og viðurkenndi að hann hefði reynt að fá hann til KR þegar hann þjálfaði þar árið 2006.

„Ég ætlaði að taka hann beint úr skóla. Hann var að spila með Grambling State [í Bandaríkjunum] og hann var með þrusutölur og stóð sig vel en ég náði honum ekki þá. Það er þó aldrei að vita hvort ég nái honum ekki eftir nokkur ár.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×