Skoðun

Hversu marga dökka sérðu á myndinni?

Óskar Steinn Ómarsson skrifar

Þekkt er rannsókn vísindamanna við Hebreska háskólann í Jerúsalem, þar sem þátttakendur voru beðnir um að meta hversu hátt hlutfall fólks á myndum var hvítt og hversu hátt hlutfall þess var dökkt á hörund.

Bandarískum þátttakendum voru sýndar mósaík-myndir með andlitum 100 einstaklinga. Hver þátttakandi sá 20 slíkar myndasamsetningar, hverja í tvær sekúndur, og átti svo að meta hlutföllin á hverri mynd fyrir sig.

Þegar dökkt fólk var 25 prósent andlitanna mátu hvítir þátttakendur hlutfallið 43 prósent. Þegar hlutfall dökkra andlita var 45 prósent töldu hvítir þátttakendur það nær 59 prósentum. Þegar hlutfall dökkra var aðeins fimm prósent upplifðu hvítu þátttakendurnir að það væri 15% - þrefalt hærra en það var í raun.

Tilgáta rannsakenda var sú að við tökum frekar eftir því sem við erum óvön að sjá og ofmetum umfang þess í umhverfinu. Í þessu tilfelli voru þátttakendur ekki endilega vanir því að sjá hátt hlutfall dökkra einstaklinga á myndum (sjónvarpsþáttum, kvikmyndum eða ljósmyndum), tóku því frekar eftir þeim og ofmátu fjölda þeirra á mósaík-myndunum.

Dökkum mönnum bregður fyrir á mynd

Nú keppast ómerkilegustu stjórnmála- og fjölmiðlamenn landsins við að telja okkur trú um að múslimar og brúnt fólk beri höfuðábyrgð á þeim óeirðum sem brutust út í nokkrum evrópskum borgum síðustu helgi - og setja þær í samhengi við „stjórnlausa“ fjölgun þeirra. Þeir dreifa myndum af brúnum mönnum sem tengjast óeirðunum jafnvel ekki með nokkrum hætti. Hafa ekkert gert af sér annað en að vera dökkir á hörund og að hafa slysast inn á ljósmynd í slagtogi við aðra dökka menn.

Þeim sem dreifa þessum myndum er alveg sama hvaðan þær koma því þeir vita að mynd af hópi brúnna karlmanna, sett í neikvætt samhengi, getur dugað til að skapa ótta og óöryggi meðal stórs hluta kjósenda. Óttinn skilar atkvæðum.

En tók einhver eftir hvítu mönnunum tveimur á myndinni sem bæjarstjóri Ölfuss deildi í vikunni? Sjálfur tók ég ekki eftir þeim fyrr en einhver benti á þá - það sem heilinn minn sá á myndinni var hópur dökkra manna. Það er nefnilega enginn ónæmur fyrir þessu sálfræðilega fyrirbæri - þessari hugrænu slagsíðu - sem rannsakendur við Hebreska háskólann könnuðu í rannsókn sinni.

Verum meðvituð um slagsíðuna

Í tengslum við óeirðirnar tala margir eins og múslimar séu að „taka yfir“ Evrópu. Að hingað streymi „ótakmarkaður fjöldi“ þessa fólks. Þegar við heyrum slíka orðræðu, þegar við sjáum myndir af grímuklæddum óeirðarseggjum, og þegar okkur líður sjálfum eins og innflytjendur spretti hér upp eins og gorkúlur, þá getur verið hollt að hugsa til rannsóknarinnar við Hebreska háskólann í Jerúsalem. Og minna sig á að innflytjendur frá svæðum þar sem múslimar eru í meirihluta eru aðeins 1,6% af íbúafjölda Íslands.

PS: Þetta kemur kannski einhverjum á óvart en ekki allir Frakkar eru hvítir. Fimmtungur frönsku þjóðarinnar er dökkur á hörund og stór hluti þeirra getur rakið ættir sínar innan landamæra Frakklands til margra kynslóða. Það er því ekki óeðlilegt að sjá dökku fólki bregða fyrir á myndum frá mótmælum í höfuðborginni París. Þau mótmæla og fara á ströndina og fá sér kaffi og taka pláss í almannarýminu eins og aðrir. Þau eru einfaldlega hluti af þjóðinni.

Höfundur er félagsmálafulltrúi.




Skoðun

Sjá meira


×