Ítalski baróninn á ekki vatnið Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. október 2026 19:18 Fossinn Drynjandi í Hvalá. Rannsóknir voru gerðar á því að veita Eyvindarfjarðará í Hvalá í tengslum við virkjunarframkvæmdir. Egill Aðalsteinsson Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Vestfjarða um að vatnsnýtingarréttindi á landi Engjaness í Eyvindarfirði á Ströndum séu í eigu ríkisins. Baróninn hafði samið við orkufyrirtæki um afnot réttindanna vegna fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar.
Dómur Landsréttar var kveðinn upp í dag en með honum er dómur Héraðsdómur Vestfjarða frá í apríl 2025 staðfestur. Málið varðar jörðina Engjanes í Árneshreppi sem baróninn ítalski Felix von Longo-Liebenstein keypti árið 2006. Í afsali jarðarinnar sagði að jörðin seldist „með öllu sem fylgir og fylgja ber, að engu undanskildu“. Vandinn var hins vegar að þegar ríkið seldi þáverandi hreppstjóra jörðina árið 1958 var sérstaklega tekið fram að vatns- og jarðhitaréttindi umfram heimilisþarfir fylgdu ekki með, auk annarra nýtingarréttinda. Ekkert um eignarrétt ríkisins í veðbókarvottorði Eins og rakið er í dómi héraðsdóms seldi landbúnaðarráðherra eyðijörðina Engjanes og afsalaði henni til Guðjóns Guðmundssonar hreppstjóra, sem þá var búsettur að Eyri í Ingólfsfirði. Í afsalsbréfi sem ráðherra undirritaði 30. janúar 1958 kemur fram að jörðin hafi verið seld á grundvelli heimildar í þágildandi lögum um sölu jarðeigna í opinberri eigu. Frá vegagerð í Ingólfsfirði á Ströndum sumarið 2019 í tengslum við Hvalárvirkjun.KMU Í afsalsbréfinu sem ráðherra undirritaði var þess sérstaklega getið að „Námar og námuréttindi í landi jarðarinnar, svo og vatns- og jarðhitaréttindi, umfram heimilisþarfir“ væru undanskilin við sölu jarðarinnar. Afsalinu var þinglýst 12. febrúar 1958 en ljósrit úr þinglýsingabók liggur fyrir. Árið 2009 keypti baróninn jörðina af sonarsyni hreppstjórans en í veðbókarvottorði kom ekkert fram um að ríkið áskildi sér enn nýtingarréttinn. Ráðherra hafi ekki haft heimild Barón von Longo-Liebenstein vildi meina fyrir Landsrétti að ráðherra, sem var þá Hermann Jónasson, hafi skort lagaheimild til að undanskilja auðlindaréttindi þegar gengið var frá afsali jarðarinnar. Hann vísaði til þess að engin almenn lagaheimild hafi verið til staðar fyrir sölu eyðijarða í eigu ríkisins á þeim tíma sem afsalið fór fram. Íslenska ríkið mótmælti þessu. Engar takmarkanir hafi verið á sjálfstæðu mati ráðherra um að undanskilja auðlindaréttindi. Ekkert hafi heldur legið fyrir um að kaupandi Engjaness á sínum tíma hafi gert athugasemdir við þennan ráðahag. Í dómi Landsréttar kemur fram að hann telji baróninn ekki hafa sýnt fram á að heimild ráðherra og svigrúmi hans hafi verið settar neinar skorðum samkvæmt þágildandi lögum um sölu þjóðjarða. Sömuleiðis að þrátt fyrir að ekki hafi komið fram í veðbókarvottorði jarðarinnar að réttindin væru undanskilin hafi þinglýsing forgang. Forgangsáhrifin miðist við þá tímasetningu þegar skjal er afhent til þinglýsingar en ekki færslu þess í þinglýsingabók. Ríkið til í að ganga inn í samninginn Árið 2009 gerði Felix von Longo-Liebenstein samning við orkufyrirtækið Vesturverk um rannsóknir á að veita Eyvindafjarðará yfir í Hvalá. Eyvindafjarðará fellur eins og nafnið gefur til kynna í Eyvindarfjörð og því innan landamerkja Engjaness. Samningurinn sem gerður var þá fól í sér afnot af vatnsréttindum Engjaness sem baróninn taldi eiga og mega sýsla með. Það var fyrst árið 2021, við reksturs annars dómsmáls um landamerki á svæðinu, sem lögmaður barónsins varð var við mögulegan ágreining um eignarréttinn. Ríkið lét árið 2022 færa athugasemd um eign sína á réttindunum inn í þinglýsingabók og höfðaði loks þetta mál. Einn af tilkomumestu fossunum í Eyvindarfjarðará.Vísir Fjármálaráðuneytið hafði hins vegar þegar árið 2023 lýst því yfir gagnvart VesturVerki að ef ríkið reyndist eigandi réttindanna væri það reiðubúið að ganga inn í ákvæði samningsins frá 2009 að því marki sem hann varðaði auðlindir í eigu ríkisins. Greiðslur vegna nýtingarréttarins myndu þá renna til ríkisins. Í mars á þessu ári var framkvæmdaleyfi Árneshrepps fyrir undirbúningsframkvæmdum vegna Hvalárvirkjunar fellt úr gildi vegna annmarka á málsmeðferð. Fyrr í þessum mánuði hóf Vesturverk vinnu við endurskoðað umhverfismat vegna virkjunarinnar.
Dómsmál Deilur um Hvalárvirkjun Árneshreppur Jarða- og lóðamál Jarðakaup útlendinga Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í vestur vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira