Innlent

Sig­mar snýr aftur

Jón Þór Stefánsson skrifar
Sigmar Guðmundsson hefur verið í veikindaleyfi.
Sigmar Guðmundsson hefur verið í veikindaleyfi. Vísir/Vilhelm

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, tekur sæti á ný á Alþingi í dag eftir réttrúmlega mánaðar fjarveru, vegna veikindaleyfis.

Þar af leiðandi mun Valdimar Breiðfjörð Birgisson fara af þingi, en hann kom inn sem varamaður í stað Sigmars.

Þetta kemur fram á vef Alþingis.

Þar kemur jafnframt fram að María Rut Kristinsdóttir, sem er einnig þingmaður Viðreisnar, muni taka sæti á ný á Alþingi næstkomandi mánudag, eftir um viku fjarveru. 

Þá víkur varaþingmaður hennar, Edit Ómarsdóttir, af þingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×