Innlent

Feginn að verð­bólga stendur í stað og meiri­hluti mót­fallinn þátt­töku í Euro­vision

Telma Tómasson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Fjármála- og efnahagsráðherra segir mjög ánægjulegt að sjá verðbólgu standa í stað og að hún sé helst drifin áfram af utanaðkomandi þáttum. Hagstofa Íslands birti verðbólgutölur fyrir október í morgun, sem sýna að hún er óbreytt frá fyrri mánuði og stendur í 5,9 prósentum. Rætt er við Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar. 

Spænska skipafélagið Boluda Shipping og Samskip undirrituðu kaupsamning á Samskipum og dótturfélögum þess í gær. Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir voru stærstu eigendur skipafélagsins en sonur þeirra Ólafur Orri Ólafsson var í janúar ráðinn nýr forstjóri samstæðu félagsins. Hann verður áfram forstjóri samstæðunnar undir nýjum eigendum og ræðir um breytingarnar í hádegisfréttum.

Hitafundur stendur nú yfir hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, sem telja ríkisstjórn Íslands grafa undan uppbyggingu atvinnulífs og byggðar í landshlutanum með ólíðandi álögum. Þannig eigi að sækja um helming nýrra skattahækkana í Suðurkjördæmi þrátt fyrir að aðeins rúmlega 9 prósent íbúa landsins búi þar. Rætt verður við formann samtakanna í beinni útsendingu. 

Einnig verður fjallað um stöðuna á Spáni, þar sem alvarlegt lestarslys varð í gær með þeim afleiðingum að minnst 68 létu lífið og tugir slösuðust.  Þetta er annað alvarlega lestarslysið á Spáni á skömmum tíma, en í janúar á þessu ári rákust einnig tvær lestir saman með þeim afleiðingum að 46 létust og tugir slösuðust. Slysin hafa vakið upp áleitnar spurningar um öryggi spænska járnbrautarkerfisins.

Þá verður fjallað um nýja viðhorfskönnun Maskínu sem sýnir að yfirgnæfandi meirihluti er mótfallin því að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael á meðal þátttökuþjóða. Stjórnarkona í félagi áhugafólks um söngvakeppnina segir félagið ekki taka afstöðu í málinu en segir sárt að ekki sé haldin innlend söngvakeppni.

Fjölbreyttur hádegisfréttatími á slaginu tólf á Bylgjunni. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×