Getur ekki lengur orða bundist Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. október 2026 10:11 Hörður Arnarson lét nýlega af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar og hefur vísað til þess að stjórn stofnunarinnar hafi endurtekið fundað án hans. Vísir/Vilhelm Hörður Arnarson, sem nýlega lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar, vill að fyrirkomulag Samkeppniseftirlitsins verði endurskoðað í lögum. Hann telur að skýra þurfi betur aðskilnað rannsóknar, málsóknar og ákvörðunar um brot og viðurlög. Þetta kemur fram í aðsendri grein hans í Morgunblaðinu þar sem hann gagnrýnir vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins í máli gegn fyrirtækinu.
Hörður áréttar að samkeppniseftirlit sé meðal mikilvægustu eftirlitsstofnana samfélagsins og geti haft úrslitaáhrif á atvinnulíf, fjárfestingar og hag neytenda. „Það er mér því þvert um geð að þurfa að bætast í hóp þeirra sem gagnrýna vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins. En eftir að áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur nú fellt úr gildi ákvörðun þess gagnvart Landsvirkjun, fyrirtækinu sem ég hef stýrt í sautján ár, get ég ekki lengur orða bundist. “ Risasekt felld úr gildi Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi þann 19. október úr gildi 1,4 milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á Landsvirkjun í fyrra fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Málið snerist um þátttöku fyrirtækisins í útboðum Landsnets á raforku vegna flutningstapa á árunum 2017-2021. Orka náttúrunnar og N1 rafmagn kvörtuðu til eftirlitsins. Þau töldu sig ekki hafa átt möguleika í útboðunum nema með tapi þar sem Landsvirkjun hefði boðið lægra verð en það sem fyrirtækin greiddu samkvæmt verðskrá. Hörður, sem var forstjóri Landsvirkjunar í sautján ár, segir í greininni í Morgunblaðinu að í niðurstöðu nefndarinnar komi fram verulegir annmarkar á rannsókn og málsmeðferð eftirlitsins. Markaðir málsins hafi ekki verið skilgreindir með fullnægjandi hætti og rannsókn á skilyrðum og mögulegum skaðlegum áhrifum meints verðþrýstings hafi verið ófullnægjandi. Þá hafi gagnaöflun og meðferð gagna verið áfátt. Samkvæmt Herði stóð „ekki steinn yfir steini“ í málatilbúnaði stofnunarinnar. Úrskurðurinn hefur ekki verið birtur opinberlega. Samkeppniseftirlitið lýsir niðurstöðunni á annan hátt. Samkvæmt yfirlýsingu þess vísaði áfrýjunarnefndin málinu til nýrrar meðferðar hjá eftirlitinu, þar sem rannsaka þyrfti ákveðin atriði nánar áður en tekin yrði efnisleg afstaða til þess hvort Landsvirkjun hefði misnotað stöðu sína. Nefndin hafi ekki talið nægja að byggja niðurstöðu um ólögmætan verðþrýsting einvörðungu á samanburði á tilboðsverði Landsvirkjunar og heildsöluverði hennar á grunnorku við lok útboðsfresta. Ósáttur við fullyrðingar forstjórans Hörður gagnrýnir einnig framgöngu starfsfólks eftirlitsins meðan málið var til rannsóknar. Það hafi ítrekað tekið þátt í opinberri umræðu um orkumál, meðal annars á ráðstefnum, í blaðagreinum, umsögnum til Alþingis og í fjölmiðlum, og þar hafi komið fram neikvætt viðhorf til Landsvirkjunar. Slíkt hljóti að orka tvímælis hjá stjórnvaldi sem ber að gæta hlutleysis. Eftirlitið hafi jafnframt reynt að hafa áhrif á ráðgjafa Landsvirkjunar. Þegar ákvörðunin var kynnt hafi forstjóri stofnunarinnar haldið því fram að starfsmenn Landsvirkjunar hefðu vísvitandi brotið lög, þótt ekkert slíkt hefði komið fram við rannsóknina. Landsvirkjun sendi erindi til umboðsmanns Alþingis fyrr á þessu ári og óskaði eftir úttekt á framgöngu og málsmeðferð eftirlitsins. Hörður segir úrskurð áfrýjunarnefndarinnar styðja það mat fyrirtækisins að eftirlitið hafi farið út fyrir valdheimildir sínar. Að mati Harðar sýnir málið að endurskoða þurfi skipulagið. Samkeppniseftirlitið rannsaki ætluð brot, setji fram frummat og taki að lokum ákvörðun um brot og viðurlög. „Rannsakar, ákærir og dæmir,“ skrifar Hörður í grein sinni. Hann telur slíka endurksoðun geti styrkt réttaröryggi málsaðila og aukið traust á hlutlægni og sanngirni í meðferð samkeppnismála. Landsvirkjun hafi tekið þátt í útboðum Landsnets til að tryggja orkuöryggi, ekki til að auka markaðshlutdeild, segir Hörður. Fyrirtækið hafi talið sér skylt að mæta hluta eftirspurnarinnar, því annars gæti raforkukerfið hrunið. Hann segir orkuöryggi hafa gleymst í raforkulögunum frá 2005 og bendir á að raforkukaupendur búi við hagstætt og stöðugt verð í alþjóðlegum samanburði. Erfitt sé að sjá að aðstæður á markaði bendi til alvarlegra brota á samkeppnislögum. Samkeppniseftirlitið sagðist í yfirlýsingu sinni á dögunum ætla að fara yfir úrskurðinn og afla sjónarmiða aðila á markaðnum og annarra stjórnvalda á evrópska efnahagssvæðinu. Að því loknu tæki það ákvörðun um hvort úrskurðurinn yrði borinn undir dómstóla eða ný ákvörðun tekin í málinu.
Landsvirkjun Starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun Samkeppnismál Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira