Lífið

Tæplega þriggja ára­tuga löng göngu­ferð á enda

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Móðir Karls Bushby, Angela Bushby, tók á móti honum eftir 28 ára ferðalag á æskuheimili hans í Hull í Englandi.
Móðir Karls Bushby, Angela Bushby, tók á móti honum eftir 28 ára ferðalag á æskuheimili hans í Hull í Englandi. Vísir/Getty

Hinn 57 ára breski ævintýrakappi Karl Busby hefur lokið 50 þúsund kílómetra göngu sinni frá Suður-Ameríku til Bretlands eftir 28 ár. 

Bushby lagði af stað í ferðalagið 1998, þá 29 ára gamall, frá Punta Arenas í Síle heim til Englands. Hann setti sjálfum sér tvær reglur: hann mætti ekki snúa aftur heim fyrr en að ferðinni væri lokið og að hann mætti ekki nýta sér nein farartæki til þess að komast á leiðarenda. 

Fólk safnaðist saman í Hull til þess að taka á móti ferðalanginum er hann lagði af stað síðasta spölinn heim til móður sinnar, Angelu Bushby. Þau höfðu samið um að hún biði hans og tæki á móti honum á æskuheimilinu í Hull. 

„Það er gott að vera kominn heim. Þetta er súrrealískt,“ hefur BBC eftir Bushby. 

Fjöldi fólks fylgdi Bushby síðasta spölinn heim á leiðarenda.Vísir/Getty

Aðspurður af blaðamönnum sagðist hann loks vera búinn að leggja skóna á hilluna. Nú vinni hann að því að skrifa bók um ferðalög sín og að heimildarmynd ásamt þýska kvikmyndagerðarmanninum Werner Herzog. 

Á leiðinni þræddi hann fjórar heimsálfur en stundum þurfti hann að stinga sér til sunds til þess að komast leiðar sinnar. Meðal annars synti hann þrjú hundruð kílómetra í Kaspíahafi til þess að komast frá Kasakstan til Aserbaídjan í október 2024 og Ermasundið í byrjun október síðastliðins.

Af þeim 28 átta árum sem hann var að heiman fóru fimmtán í gönguna sjálfa. Ýmislegt hefði sett strik í reikninginn svo sem vegabréfsáritanir og kórónuveirufaraldurinn og tilheyrandi ferðatakmarkanir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.