Enski boltinn

„Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pressan er gríðarlega á Michael Carrick en hann segist hlakka til að stýra Manchester United í kvöld.
Pressan er gríðarlega á Michael Carrick en hann segist hlakka til að stýra Manchester United í kvöld. AP/Ian Walton)

Michael Carrick viðurkennir að það kunni að hljóma eins og hálfgerð klikkun en hinn umsetni stjóri Manchester United segist hlakka til uppgjörsins við Roma í Meistaradeildinni á Old Trafford í kvöld.

United fer inn í leikinn án sigurs í níu leikjum í öllum keppnum. Það er versta gengi liðsins síðan tímabilið 1988-89. Liðið hefur ekki leikið tíu leiki í röð án sigurs á einu tímabili síðan 1977-78 og sú tilfinning fer vaxandi að Carrick missi starfið í komandi landsleikjahléi.

Eina tap Roma það sem af er tímabili kom á heimavelli gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í síðasta mánuði, þegar liðið var 3-1 yfir þegar sjö mínútur voru eftir.

United er aftur á móti í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og eftir töp gegn Atletico Madrid og Como hefur liðið hrapað niður í 21. sæti stigatöflu Meistaradeildarinnar eftir þrjá leiki, en aðeins efstu 24 liðin komast áfram.

Staðan er dökk, en í stað þess að hafa áhyggjur af því sem fram undan er lítur Carrick á þetta sem tækifæri til að snúa gangi tímabilsins við.

„Þið haldið kannski að ég sé brjálaður miðað við úrslitin sem við höfum fengið og það sem er í gangi, en í alvöru talað get ég hreinlega ekki beðið eftir leiknum. Ég hlakka mikið til,“ sagði Carrick.

„Heyrðu, ég get ekki séð inn í framtíðina, maður veit aldrei hvað gerist. Það breytir ekki því hvernig mér líður. Það sem gerist mun gerast, í hvaða átt sem það fer, en við viljum gera morgundaginn  [daginn í dag] að stóru kvöldi,“ sagði Carrick.

Argentínski varnarmaðurinn Lisandro Martinez fékk rauða spjaldið gegn Chelsea og einhverjir hafa kallað eftir því að Martinez yrði settur út úr liðinu fyrir leikinn gegn Roma.

„Hlutir gerast í fótbolta. Stundum gerir maður hluti; maður tekur ákvörðun, maður gerir mistök. Stundum gengur það vel,“ sagði Carrick.

Hann vísaði einnig á bug áhyggjum bæði af skuldbindingu Martinez og alls leikmannahópsins.

„Skynjun er skrýtið fyrirbæri. Hún getur látið hlutina líta út á alls konar ólíka vegu. Það er góður andi í búningsklefanum,“ sagði Carrick.

„Ég hef sagt það áður, ég efast ekki um skuldbindingu og hollustu leikmannanna gagnvart félaginu, mér og hver öðrum. Við þurfum að spila betur. Við getum tekið betri ákvarðanir. En hollustan er alls ekki vandamálið,“ sagði Carrick.

Leikur Manchester United og Roma hefst klukkan 20.00 en bein útsending á Sýn Sport Viaplay hefst klukkan 19.50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×